Finnst ég alltaf vera í Tallinn
Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir því eistneska í undankeppni EM 2028 í Tallinn í dag.
Liðin hafa mæst nokkrum sinnum á síðustu árum í sams konar undankeppnum og landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson er orðinn kunnugur staðháttum í höfuðborginni.
„Við höfum mætt þeim held ég þrisvar á síðustu fjórum árum eða eitthvað. Mér finnst ég allavega alltaf vera í Tallinn,“ sagði Bjarki léttur í samtali við mbl.is.
„Þetta er ágætis borg. Við erum yfirleitt bara að koma daginn fyrir leik, svo er leikur og svo er maður farinn. Maður er kannski ekkert mikið að skoða sig um nema í leikdagsgöngutúrnum. En þetta er fínasta borg,“ sagði Bjarki.
Þannig er líf atvinnu- og landsliðsmanna. Menn ferðast mikið en sjá oft lítið.
„Já, eiginlega. Maður er búinn að ferðast út um allan heim en sér rosalega lítið af stöðunum sem maður er á. Það er bara partur af þessu,“ sagði Bjarki.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗