Varpar fram kenningu um ákvörðun Ronaldo
Helgi Fannar og Hörður Snævar gerðu upp helstu fréttir og leiki í Íþróttavikunni á DV/433.
Cristiano Ronaldo tilkynnti á dögunum að hann væri að leggja landsliðsskóna á hilluna eftir glæstan feril.
„Þetta kemur að einhverju leyti á óvart, ég sá hann snúa aftur,“ sagði Helgi.
Hörður benti á það sem gerðist í síðasta landsleikjaglugga, þegar Ronaldo fór heim í fýlu.
„Það gekk ýmislegt á síðast og hann hefur kannski ekki haft áhuga á að starfa aftur með Jorge Jesus landsliðsþjálfara.
Hann nær þúsund mörkum í vetur og leggur svo bara skóna á hilluna í vor,“ sagði hann, en Ronaldo vantar 15 mörk upp í þúsund mörk á ferlinum. Vill hann ná þeim áfanga áður en hann hættir.
Þátturinn er í spilaranum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗