Hundruð þúsunda heimila án rafmagns

Úkraínumenn búa sig undir erfiðan vetur.

Úkraínumenn búa sig undir erfiðan vetur. AFP

Hundruð þúsunda heimila í Úkraínu urðu rafmagnslaus eftir árásir Rússa á orkuinnviði landsins í nótt.

Þá gerðu Rússar drónaárás á þorp í Saporisjía-héraði þar sem björgunarfólk leitar enn að líkum eftir mannskæða árás fyrr í vikunni.

Úkraínumenn búa sig undir enn einn erfiðan vetur en Rússar hafa hert daglegar loftárásir sínar og beina drónum og flugskeytum einkum að raforkukerfinu.

Í Dnípropetrovsk-héraði í miðri Úkraínu eru yfir 600 þúsund íbúar án rafmagns, að sögn orkufyrirtækisins DTEK.

Rafmagnslaust er víða í Úkraínu.

Rafmagnslaust er víða í Úkraínu. AFP

Segir Rússa auka þrýsting fyrir viðræður

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir að árásirnar í nótt hafi valdið víðtæku rafmagnsleysi um allt land. Í Zhytomyr-héraði einu séu 140 fjölbýlishús án hita en frost er þegar farið að gera vart við sig í Úkraínu.

Selenskí sakar Rússa um að herða árásirnar til að setja þrýsting á Úkraínumenn fyrir þríhliða viðræður í Abú Dabí sem Bandaríkin hafa milligöngu um og eiga að fara fram á þriðjudag og miðvikudag.

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti.

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti. AFP

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅