Persónuupplýsingar ráðherra birtar á myrkravefnum
Antonio Tajani, utanríkisráðherra Ítalíu, segir tölvuþrjóta hafa birt persónuupplýsingar sínar á netinu vegna stuðnings Ítalíu við Úkraínu. Hann segir tölvuþrjótana einnig beina spjótum sínum að fjölskyldu sinni.
„Dögum saman hafa netglæpamenn birt persónuupplýsingar mínar á myrkravefnum og leitað frekari upplýsinga. Með því hafa þeir í raun gert mig berskjaldaðan fyrir frekari hótunum og tilraunum til að hræða mig,“ skrifaði Tajani á samfélagsmiðilinn X.
Hann tilgreindi ekki hvers eðlis hótanirnar væru.
Myrkravefurinn er falinn hluti internetsins sem hefðbundnar leitarvélar skrá ekki og aðeins er hægt að nálgast með sérstökum hugbúnaði.
Tengir málið stuðningi við Úkraínu
„Afstaða okkar til Úkraínu er pólitíska ástæðan fyrir því að spjótunum er beint að mér,“ sagði Tajani.
„Að verja frelsi fullvalda ríkis og taka skýra afstöðu með lýðræði og sjálfstæði þjóðar er hættulegt í augum þessara glæpaafla.“
Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, kenndi tölvuþrjótum sem styðja Rússland um málið og lýsti yfir fullri samstöðu með Tajani.
„Sala trúnaðarupplýsinga um fyrirsvarsmenn opinberra stofnana er mikið áhyggjuefni og við henni verður að bregðast af fullri einurð,“ sagði hún í yfirlýsingu.
Rússnesk stjórnvöld hafa ekki brugðist opinberlega við ásökununum.
Áhyggjur af dreifingu falsaðra mynda
Meloni lýsti jafnframt áhyggjum af „dreifingu falsaðra mynda“ sem hún sagði liðsmenn ítölsku stjórnarandstöðunnar hafa deilt. Hún greindi ekki nánar frá efni myndanna.
Ítalska ríkisstjórnin hefur veitt Úkraínu bæði mannúðar- og hernaðaraðstoð í stríðinu gegn Rússlandi.
Tajani, sem einnig er varaforsætisráðherra, sagði ríkisstjórnina taka hótanirnar alvarlega.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗