Í fyrsta sinn í 40 ár hjá Manchester United
Manchester United er í fyrsta sinn í 40 ár í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa leikið að minnsta kosti níu leiki á tímabilinu.
United er í 18. sæti deildarinnar með sjö stig eftir níu umferðir. Liðið mætir Aston Villa í dag og getur með sigri komist upp úr fallsæti.
Síðast var United í fallsæti eftir að hafa leikið að minnsta kosti níu leiki í nóvember 1986. Þá var liðið í 21. sæti efstu deildar eftir 15 umferðir.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗