Safna fyrir Pálínu sem var sakfelld fyrir meiðyrði gegn Ingó Veðurguð – „Þetta mál snýst ekki bara um Pálínu“
Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 8. nóvember 2026 11:30
Ingó hafði betur í Landsrétti sem sneri við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Mynd/Sigtryggur Ari
Söfnun er hafin fyrir málskostnaði fyrir Pálínu Helgu Þórarinsdóttur sem var sakfelld fyrir meiðyrði gegn Ingólfi Þórarinssyni, títt nefndum Ingó Veðurguð.
„Hvað kostar ein Facebook-athugasemd?“ segir í auglýsingu um söfnun fyrir Pálínu Helgu Þórarinsdóttur.
Pálína var sakfelld í októberbyrjun í Landsrétti vegna ummæla hennar við deilingu Vísis á frétt á Facebook þann 22. mars árið 2022. Voru ummælin dæmd dauð og ómerk, það er:„„þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ sem andsvar við athugasemdinni „Áfram Ingó.“
Sjá einnig:
Pálína sakfelld fyrir meiðyrði gegn Ingó Veðurguð
Pálína var dæmd til að greiða Ingó 350 þúsund krónur í miskabætur sem og málskostnað upp á 1,8 milljónir króna. Var þetta viðsnúningur á dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði sýknað hana.
„Styrkjum Pálínu Helgu Þórarinsdóttur í réttarbaráttunni. Þetta mál snýst ekki bara um Pálínu. Það varðar okkur öll. Það snýst um tjáningarfrelsi, réttaröryggi og réttinn til að ræða kynferðisofbeldi í samfélaginu,“ segir í auglýsingunni. „Það þarf ekki að banna fólki að tala til að þagga niður í því. Það er nóg að gera það hættulegt.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗