Björgunarsveitir kallaðar til vegna bíls í á
Viðbraðsaðilar eru á vettvangi og þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á mesta forgangi, en ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um fjölda farþega þó talið sé að um alvarlegt slys sé að ræða. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Björgunarsveitir og lögregla voru kölluð út á ellefta tímanum vegna bíls sem fór út í Klefá á Snæfellsnesi.
Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar staðfestir þetta í samtali við mbl.is.
Viðbraðsaðilar eru á vettvangi, en ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um fjölda farþega þó talið sé að um alvarlegt slys sé að ræða.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að þyrla Gæslunnar hafi verið kölluð út á hæsta forgangi vegna slyssins að beiðni lögreglunnar á Vesturlandi, og að hún hafi tekið á loft fyrir nokkrum mínútum síðan.
Fram kemur á vefsíðu Vegagerðarinnar að vegurinn við Klefá gæti verið lokaður fram eftir degi, sem ætla má að sé vegna slyssins.
Fréttin verður uppfærð.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗