Grealish snýr aftur
Jack Grealish er byrjaður að æfa með enska knattspyrnufélaginu Everton á nýjan leik eftir að hafa tekið út agabann.
The Atheltic segir frá en Grealish missti af síðustu fjórum leikjum Everton.
Hann var settur úr hópnum vegna agabrots eftir að hann skrópaði á æfingu. Hann missti upphaflega af leiknum gegn Arsenal þann 24. október vegna veikinda.
Grealish, sem er 31 árs, er á öðru tímabili sínu að láni frá Manchester City.
Grealish verður því að óbreyttu með Everton í útileik liðsins gegn Brentford eftir komandi landsleikjahlé.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗