Ísfélag bætti tanki við bræðsluna
Tveir kranar voru notaðir þegar nýverið var komið fyrir nýjum 250 rúmmetra tanki úr ryðfríu stáli við fiskimjölsverksmiðju Ísfélags í Vestmannaeyjum.
Guðlaugur Friðþórsson, verkefnastjóri við uppsetninguna, segir tvo krana hafa verið notaða til að tryggja að neðri hluti tanksins yrði ekki fyrir skemmdum.
„Þetta er viðbótartankur fyrir kælisjó frá loðnunni,“ sagði hann og bætti við að vonir stæðu til að geta með tilkomu hans bætt stýringu á hrognakerfi og aukið jafnvægi í vinnslunni, sem á móti myndi auka afköst.
Tankurinn segir Guðlaugur að sé keyptur frá Hollandi og sé viðbót við þá fjóra tanka sem fyrir eru.
Dálitlar tilfæringar þurfti til að tryggja að nýi tankurinn yrði ekki fyrir skemmdum þegar honum var komið fyrir á palli sínum. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson
Tankinum hefur nú verið komið fyrir á steyptum grunni og hann tengdur við kerfi vinnslunnar.
Guðlaugur segir það hafa gengið vel að koma tankinum fyrir. Helst hafi þurft að hafa vara á vegna vinds, enda geti blásið hressilega í Eyjum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
