Curry hefur engu gleymt

Steph Curry fór á kostum.

Steph Curry fór á kostum. AFP/Ezra Shaw

Steph Curry heldur áfram að spila frábærlega með liði sínu Golden State Warriors í bandarísku NBA-deildinni í körfubolta. 

Curry skoraði 41 stig í sigri Golden State á Orlando Magic, 126:119, í San Francisco í nótt en hann tók einnig sex fráköst og gaf sex stoðsendingar. 

Golden State hefur nú unnið sjö leiki í röð eftir að hafa tapað fyrstu þremur. 

Önnur úrslit:

Indiana Pacers 102:114 Denver Nuggets
Atlanta Hawks 124:121 Brooklyn Nets
Cleveland Cavaliers 97:109 New York Knicks
Oklahoma City Thunder 114:75 Washington Wizards
Phoenix Suns 102:99 Houston Rockets
Portland Trail Blazers 103:125 San Antonio Spurs

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅