„Die Hard er hundrað prósent jólamynd“

Jóhann segir að myndirnar Its a Wonderful Life, Home Alone og National Lampoon's Christmas Vacation komi honum alltaf í jólaskap. Morgunblaðið/Karítas

Jóhann Ágústsson er hafsjór af fróðleik um kvikmyndir og hefur vart tölu á þeim myndum sem hann hefur séð um ævina. Hann er þó aðeins 38 ára og á eflaust eftir að bæta mörgum við safnið.

Jóhann starfar sem stuðningsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg og hefur frá árinu 2011 haldið úti Facebook-hópnum Kvikmyndaáhugamenn, þar sem félagar ræða myndir, skiptast á skoðunum og deila fróðleik. Hann skrifar einnig greinar á kvikmyndir.is og gaf á síðasta ári út spilið Bíótöfrar. Undir sama heiti stendur hann fyrir sérsýningum í bíóhúsum þar sem klassískar myndir fá að njóta sín á hvíta tjaldinu. Í desember verða Mary Poppins og In Bruges sýndar. Hefðbundnar jólamyndir urðu því ekki fyrir valinu, en að sögn Jóhanns geta myndir af ýmsum toga komið manni í jólaskap.

Þrátt fyrir brennandi kvikmyndaáhuga lá leið hans í aðra átt í námi. Hann nam stjórnun og stefnumótun og ferðamálafræði og lauk jafnframt meistaranámi í nýsköpun og viðskiptaþróun.

Jóhann ræddi við blaðamann um jólamyndir, hvers vegna það er svo notalegt að horfa á kvikmyndir yfir hátíðarnar og það sem er væntanlegt í bíó. Og auðvitað kom stóra spurningin upp: Er Die Hard jólamynd?

Kvikmyndaáhugi Jóhanns kviknaði snemma og hann minnist þess að hafa farið með mömmu sinni á vídeóleiguna þegar hann bjó í Frakklandi sem barn.

„Kvikmyndaáhuginn hefur fylgt mér frá æsku, bókstaflega síðan ég man eftir mér. Fyrstu æviárin bjó ég í Frakklandi og man vel þegar ég rölti með mömmu á vídeóleiguna og fékk að velja mér teiknimyndir. Við áttum líka fullt af Disney-spólum. Ég er svona klassískt barn tíunda áratugarins og VHS-spólurnar voru stór hluti af æskunni,“ segir hann og heldur áfram: „Ég sá Raiders of the Lost Ark og Jurassic Park mjög ungur og þegar ég flutti til Íslands fór ég svo, eins og svo margir strákar á þessum tíma, að stelast í myndir með Van Damme og Schwarzenegger og alls konar aðrar hasarmyndir. Áhuginn hefur svo bara þróast og með árunum fór ég að kafa meira í eldri myndir, kvikmyndasöguna og alls konar ólíkar tegundir.“

Ekki eru allir sammála um hvort Die Hard sé jólamynd en Jóhann segir hana 100% vera jólamynd. Skjáskot/IMDb

„Mér finnst fólk bara þurfa að velja með hjartanu“

Jóhann hefur tekið saman lista yfir 100 bestu myndir allra tíma að sínu mati. Í efsta sæti er One Flew Over the Cuckoo's Nest frá árinu 1975, með Jack Nicholson í aðalhlutverki. Jólamyndin sígilda It's a Wonderful Life er í miklu uppáhaldi hjá Jóhanni og skipar 24. sæti listans. Hún er jafnframt eina jólamyndin sem kemst á listann.

Aðspurður hvað fái fólk til að horfa á sömu jólamyndirnar ár eftir ár segir Jóhann margt koma til.

„Þessar myndir koma fólki bara í jólaskap og flestar tengjast þær fallegum minningum. Það er eitthvað við stemninguna, boðskapinn, tónlistina og umgjörðina sem heillar. Margir tengja þær líka við nostalgíu og það fylgir því ákveðin vellíðan og tilhlökkun að setja jólamynd í „tækið“ og koma sér fyrir í sófanum undir sæng með kakóbolla við hönd.“

Stundum nennir maður ekki út að gera snjókarl og vill frekar kúra yfir jólamynd. Unsplash/Vladimir Haltakov

Sjálfur segir hann hlýjuna og boðskapinn skipta miklu máli, þótt góð jólamynd þurfi ekki endilega að vera væmin.

„Margar bestu jólamyndirnar fjalla um fjölskyldu, sambönd, að finna tilgang eða kunna að meta það sem maður hefur. It's a Wonderful Life, Home Alone og National Lampoon's Christmas Vacation koma mér alltaf í jólaskap. Svo finnst mér líka gaman að horfa á myndir sem maður tengir bara sjálfur við hátíðarnar þótt þær séu ekki endilega hefðbundnar jólamyndir.“

Þar nefnir hann meðal annars The Lord of the Rings-myndirnar. Hann hefur einnig gaman af óhefðbundnari jólamyndum á borð við The Nightmare Before Christmas og Batman Returns.

Flest þekkjum við vinsælustu jólamyndirnar, en Jóhann segir margar aðrar eiga meiri athygli skilið. Fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt yfir hátíðarnar mælir hann með The Long Kiss Goodnight, Hook, Kiss Kiss Bang Bang og The Family Man. Að hans sögn gerast þær allar um jólin og þótt þær séu kannski ekki hefðbundnar jólamyndir séu þær einfaldlega góðar myndir.

Í gegnum árin hefur mikið verið deilt um hvort Die Hard, með Bruce Willis í aðalhlutverki, sé jólamynd og varð blaðamaður því að fá að heyra hvar Jóhann stendur í þeim málum.

„Die Hard er hundrað prósent jólamynd. Hún gerist um jólin, það er jólaboð, jólaskraut og margt annað sem tengist hátíðinni. Svo eru jólalög eins og Let It Snow. Hversu mikið meira þarf maður eiginlega?“

Bruce Willis tók sig vel út í hlutverki John McClane í Die Hard. Skjáskot/IMDb

Honum finnst þó óþarfi að setja strangar reglur um hvað teljist jólamynd.

„Mér finnst ekkert þurfa að vera einhver opinber nefnd sem ákveður hvað sé jólamynd. Lord of the Rings er til dæmis jólamynd fyrir fullt af fólki þótt Frodo sé ekkert að skreyta jólatré. Myndirnar komu út yfir hátíðarnar og fólk hefur gert það að hefð að horfa á þær um jólin. Mér finnst fólk bara þurfa að velja með hjartanu. Ef einhver mynd er orðin hluti af jólahefðinni hjá þér, þá er hún jólamynd fyrir þig.“

Margir horfa á Home Alone í aðdraganda jólanna eða yfir hátíðarnar. Unsplash/Dmitry Travnkov

Botnar ekkert í Love Actually

Þrátt fyrir mikla ást á kvikmyndum er ein vinsæl jólamynd sem Jóhann tengir ekki við.

„Ég skil ekki alveg Love Actually. Mér finnst hún bara ótrúverðug. Það er ótrúlegt leikaralið í myndinni og ég skil vel af hverju svona margir elska hana, en ég botna ekkert í henni. En það er það skemmtilega við þetta, smekkur manna er ólíkur og þess vegna fáum við svona fjölbreytta flóru kvikmynda.“

Jóhanni finnst fátt skemmtilegra en að kíkja í bíó í aðdraganda jólanna eða yfir hátíðarnar. Eins og áður kom fram verða tvær Bíótöfrasýningar í Smárabíói í desember. Mary Poppins verður sýnd 9. desember og In Bruges 28. desember. Söngkonan Kristún Kristjánsdóttir, vinkona Jóhanns, ætlar að syngja tvö lög úr Mary Poppins og koma gestum í rétta gírinn.

Jóhann ætlar að sjálfsögðu ekki að láta sig vanta á sýningarnar, þótt hann nuni hafa nóg að gera fyrir jólin við að dreifa spilinu sínu í verslanir. Smárabíó sýnir einmitt nokkrar af þeim jólamyndum sem hann hefur nefnt hér og segist hann lúmskt spenntur fyrir dagskránni. Hann hlakkar líka til að prófa nýja Flauels-salinn yfir hátíðarnar.

„Salurinn er ekkert smá kósí, algjör perla, og ég held að það verði sérstaklega notalegt að horfa á góða mynd þar og upplifa jólastemninguna.“

National Lampoon's Christmas Vacation er í miklu uppáhaldi hjá Jóhanni.

National Lampoon's Christmas Vacation er í miklu uppáhaldi hjá Jóhanni. Skjáskot/IMDb

Í lokin varð blaðamaður að forvitnast um hvaða væntanlegu kvikmyndum Jóhann væri spenntastur fyrir.

„Ég er mjög spenntur fyrir Wild Horse Nine frá leikstjóranum Martin McDonagh, sem færði okkur meðal annars In Bruges og Three Billboards Outside Ebbing, Missouri. Af stóru myndunum er ég þó langspenntastur fyrir Dune: Part Three. Ég mun auðvitað fylgjast með Avengers: Doomsday og The Hunger Games, en Dune: Part Three er stórmyndin sem ég er mest að bíða eftir.“

Hann bíður einnig spenntur eftir Ebenezer, þar sem Johnny Depp fer með aðalhlutverkið.

„Þetta er ný útgáfa af Scrooge-sögunni og ég er mikill Johnny Depp-aðdáandi, þannig að ég vona að þetta verði góð mynd.“

It's a Wonderful Life er besta jólamyndin að mati Jóhanns.

It's a Wonderful Life er besta jólamyndin að mati Jóhanns. Skjáskot/IMDb

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅