Arnar Gunnlaugsson með Breitling-úr á hliðarlínunni

Flott setur punktinn yfir i-ið.

Flott setur punktinn yfir i-ið. Morgunblaðið/Ólafur Árdal

Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson hefur alltaf verið svolítið flottur í tauinu. Á dögunum var hann á hliðarlínunni með eigulegt úr. Um er að ræða Breitling Chronomat sem er ein af þekktari línum Breitling. Í þessari úralínu mætast lúxusinn og íþróttaheimurinn. Sumir segja að úrið sé smá flugmannalegt. En um það verður hver að dæma fyrir sig.

Chronomat í þeirri mynd sem flestir þekkja kom á markað 1984 og er byggt á úri sem Breitling hafði þróað árið áður fyrir ítalska listflugsteymið Frecce Tricolori. Á tímum þegar quartz-úr voru allsráðandi veðjaði Breitling á stórt chronograph-tölvuúr, og Chronomat varð síðan mjög mikilvæg lína fyrir merkið.

Hann er ekki eini Íslendingurinn sem er hrifinn af Breitling því forsætisráðherrann Kristrún Frostadóttir á úr frá sama merki.

Breitling fæst hérlendis í Michelsen.

Breitling fæst hérlendis í Michelsen.

Úrið hressir upp á heildarútlitið.

Úrið hressir upp á heildarútlitið. mbl.is/Ólafur Árdal

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅