Davíðstíminn: Gott framan af hjá Davíð en ferillinn endaði illa

Í upphafi forsætisráðherraferils Davíðs Oddssonar urðu miklar umbætur og framfarir hér á landi. Má þar nefna upplýsingalög og stjórnsýslulög, auk þess sem Ísland varð hluti af EES. Raunar var Viðeyjarstjórn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins að verulegu leyti mynduð um það að ganga frá aðild að EES. Síðari hluti forsætisráðherraferilsins var ekki eins farsæll og fyrri hlutinn og á forsetaframboðið 2016 fór illa. Feðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson gáfu á dögunum út bókina Davíðstíminn þar sem rýnt er í feril Davíðs. Þeir eru gestir Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Davíð náttúrlega, hann breytist mikið og hans svona stefna sem stjórnmálamanns breytist mikið frá því að hann kemur fram. Hann til dæmis var einn af þeim sem talaði hvað mest fyrir nánum samskiptum við og jafnvel aðild að Evrópusambandinu í Sjálfstæðisflokknum og gerði gys að þeim, sagði frægu söguna um tjakkinn. Það kom nú úr hans penna í riti sem hann, eða skýrslu sem hann ritstýrði. Og en þið byrjið snemma. Þið eruð ekki bara að fjalla um stjórnmálaferil Davíðs. Þið byrjið þegar hann er bara ungur drengur.

„Já, já, við förum í barnæskuna og hvernig verður þessi maður til? Hvernig mótast hann? Hvað er það sem mótar hann? Og hann kemur þarna með pabba sínum að bjarga systkinum sínum úr klóm barnaverndarnefndar sem hafði reyndar verið sagt frá í bók Eiríks Jónssonar. En við erum með viðtal við systurina, Lillý Valgerði, sem lýsir þessum atvikum. En þetta var nú ekki alveg svo einfalt að eins og þjóðsagan sagði að þarna hefði öllu verið kippt í liðinn og börnunum bjargað og allir lifðu hamingjusömu lífi þar eftir því að þau lentu aftur á sama stað og það var heljarinnar mikið svona mál með það allt saman.

Jón Trausti: „Bókin hefst í rauninni á mjög svona dramatískri aðgerð Davíðs og föður hans þar sem þeir sækja systkini Davíðs á Silungapoll til að forða þeim úr aðstæðum þar sem síðari tíma skýrsla frá valdatíð Davíðs sjálfs leiddi í ljós að samanstóð af vanrækslu og köldu viðhorfi gagnvart börnunum. Og af hverju gerum við það? Það er vegna þess að hann sýnir þarna einhverja eiginleika sem maður sér nú ekki hjá 12 ára krökkum oft, sjálfstraust og bara skýra sýn og staðfestu og ákveðna framhleypni. En eins og ég sagði, þetta er ekki ævisaga, það hefur verið gefin út ævisaga.

Eiríkur Jónsson gaf út ævisögu Davíðs, mig minnir að það hafi verið 1989. Það var allavega þannig að Davíð var ekki orðinn forsætisráðherra og í viðtali um þá bók lýsti Eiríkur því yfir að Davíð ætti eftir að verða forsætisráðherra og að hann ætti eftir að vera lengi við völd. Hann hérna las þannig í karakterinn bara út frá því að vinna þá bók. Það voru fjölmörg samtöl sem hann átti þar við alls kyns fólk og lagði greinilega mikla vinnu í þá bók. En hún var nú ekki með leyfi Davíðs á þeim tíma. Hann bakkaði frá gerð bókarinnar.“

Var hann, var hann í samráði við Eirík upphaflega?

Jón Trausti: „Í upphafi, já. Svo bakkar hann frá því þegar Eiríkur er lagður af stað.“

Já, honum hefur fundist Eiríkur kannski nálgast verkefnið full sjálfstætt eða hvað?

Jón Trausti: „Ja, ætli það ekki.“

Reynir: „Ég held það hafi verið eitthvað svoleiðis. Hann Eiríkur birti nú einhver samskipti þeirra í bókarlok þar sem Davíð vill ekkert með hann hafa lengur. En bókin er læsileg og gott um hana að segja, góð heimild og hann er vissulega sannspár. Hann sá stórmenni. Það er auðvitað stórmenni sem heldur völdum í öll þessi ár þó þetta hafi nú endað svona frekar illa með forsetaframboðið og allt það.“

Já, manni finnst dálítið þegar maður horfir á feril Davíðs Oddssonar, maður horfir á Davíðstímann, þá er þetta, þetta er glæsilegt, mjög glæsilegt framan af. En svo kárnar einhvern veginn gamanið.

Jón Trausti: „Já, þetta eru náttúrlega ótrúlegar umbætur sem verða á íslensku samfélagi þarna, kannski helst þarna á fyrsta kjörtímabili í Viðeyjarstjórninni þar sem þeir innleiða stjórnsýslulög og upplýsingalög og fleiri alls kyns umbætur sem gagnast okkur í dag og ganga í EES sem hafði reyndar verið lögð drög að nokkru áður.“

Jú, jú, en það var eiginlega grunnurinn á bak við þessa ríkisstjórnarmyndun er að Jón Baldvin sem var nú svona aðalmaðurinn í því að við gengum í EES, hann leit svo á að það væri betra. Mér skilst að hann hafi meira að segja hafnað forsætisráðuneytinu sem honum stóð til boða í vinstri stjórn. Honum leist bara betur á það að fara í stjórn með Sjálfstæðisflokknum og Davíð vegna þess að þannig yrði EES raunverulega að veruleika.

„Já. Alþýðuflokknum er boðinn jafn mikill fjöldi ráðherra. Sem er svona útspil frá Davíð þar sem hann er taktískur í sinni nálgun. Nú, Sjálfstæðisflokkurinn náttúrlega studdi frjáls viðskipti sem fylgja EES-svæðinu og náttúrlega Evrópusamvinna almennt þannig að það féll svo sem alveg að stefnu hans þó hann hafi nú flakkað aðeins á þessu tímabili. Hann hafði verið svolítill tækifærissinnaður eftir að ríkisstjórn Þorsteins sprakk í beinni, eins og var sagt, þá flakkaði flokkurinn aðeins í sinni afstöðu.

Og svo gerist eitthvað með afstöðuna til Evrópu að maður sér það að menn fara að bakka frá, frá þeirri hugmynd að ganga alla leið í Evrópusambandið.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅