Janus Daði hikaði ekki
Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir því eistneska í undankeppni EM 2028 í Tallinn í dag.
Er það síðasti leikur liðsins áður en undirbúningur fyrir HM í byrjun næsta árs hefst.
„Við erum að klára þetta um helgina og svo er hausinn þannig séð kominn í janúar,“ sagði landsliðsmaðurinn Janus Daði Smárason við mbl.is.
Hann viðurkennir að fiðringurinn sem kemur fyrir öll stórmót sé byrjaður að myndast.
„Ég held að við séum allir með þetta bak við eyrað, sérstaklega núna á þessum hluta tímabilsins, að æfa vel og vera í sem bestu ásigkomulagi þegar kemur að stóru stundinni,“ sagði hann.
Janus Daði hefur verið að gera flotta hluti með spænska stórliðinu Barcelona á tímabilinu. Þar er hann með bestu leikmönnum heims daglega.
„Mér finnst mikil gæði á æfingum og við æfum með frábærum handboltamönnum. Ég ætla allavega ekki að kvarta núna,“ sagði hann.
En hvort er skemmtilegra að spila með Barcelona eða landsliðinu?
„Landsliðinu,“ svaraði Janus án þess að hika í eins og eitt sekúndubrot.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗