Andlát: Sæmi Rokk
Sæmi varð þjóðinni fyrst kunnur fyrir aðdáunarverð dansspor sín á tímum rokktónlistarinnar, og þar sem hann kom var gleðin sjaldnast langt undan. mbl/Arnþór Birkisson
Leikarinn, fyrrum lögreglumaðurinn, dansarinn og lífvörðurinn Sæmi Rokk Pálsson, skírður Sæmundur Pálsson, féll frá í gærmorgun, 90 ára að aldri.
Sæmi fæddist þann 31. júlí árið 1936 og ólst upp í Reykjavík. Árið 2018 fékk hann leyfi til nafnbreytingar og tók þar með formlega upp viðurnefnið Sæmi Rokk. Eiginkona Sæma var Ásgerður Ásgeirsdóttir, sem féll frá árið 2022. Saman áttu þau fjögur börn, fjölmörg barnabörn og barnabarnabörn.
Sæmi varð þjóðinni fyrst kunnur fyrir aðdáunarverð dansspor sín á tímum rokktónlistarinnar og voru dansparið Sæmi rokk og Didda, Jónína Karlsdóttir, stjörnur síns tíma.
Þá fór orð af því að þegar lögregluþjónninn Sæmi mætti á vettvang hefði lauflétt danssýning með nokkrum rokkskrefum stundum gjörbreytt andrúmsloftinu og róað mannskapinn. Þá sást Sæma bregða fyrir í Stuðmannamyndinni Með allt á hreinu, hvar hann hét reyndar Óliver Tvist sem sagðist tvista til þess að gleyma.
Í störfum sínum sem lögreglumaður, hvar hann starfaði lengst af á Seltjarnarnesi, er Sæma minnst sem jákvæðs, hlýs og ábyrgs manns sem mætti gjarnan klukkustund fyrr til vinnu á morgnana til þess að gæta þess að börn kæmust örugg í skólann. mbl.is/Hákon
Í störfum sínum sem lögreglumaður, hvar hann starfaði lengst af á Seltjarnarnesi, er Sæma minnst sem jákvæðs, hlýs og ábyrgs manns sem mætti gjarnan klukkustund fyrr til vinnu á morgnana til þess að gæta þess að börn kæmust örugg í skólann og var hafður til fyrirmyndar í lögregluskólanum.
Hann var jafnframt lífvörður stórmeistarans Bobby Fischer þegar einvígið fræga milli Fischers og hins rússneska Boris Spassky fór fram í Laugardalshöll árið 1972 og gerðist góð vinátta milli þeirra.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


