Sæmi Rokk er látinn

Sæmi Rokk, sem áður hét Sæmundur Pálsson, er látinn, 90 ára að aldri.

Valgarður Guðjónsson, tónlistarmaður í Fræbblunum, greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum.

„Sæmi Rokk kvaddi í morgun, einstakur einstaklingur sem átti engan sinn líka. Jákvæður og alltaf tilbúinn að sjá það jákvæða í fólki og sem lögreglumaður, alltaf fyrsta hugsun að leysa öll vandamál án átaka. Mætti til vinnu klukkutíma fyrr til að passa upp á börn á leiðinni í skóla. Og í lögregluskólanum var lengi nefnt að í erfiðum aðstæðum væri gott að hugsa "hvað myndi Sæmi gera",“ segir Valgarður.

Sæmi var þekktur dansari og vann til dæmis titilinn Rokkmeistari Reykjavíkur. Hann var einnig þekktur fyrir vináttu sína við skákmeistarann Bobby Fischer. En hann var einn af þeim sem aðstoðaði hann við að fá íslenskan ríkisborgararétt af mannúðarástæðum árið 2005.

„En hann var svo miklu meira en það.. það geislaði af honum vinátta og hlýhugur - hvort sem hann var að hitta Bobby Fischer eða Muhammad Ali eða mig fjórtán ára. Hann fór aldrei í manngreinarálit, öllum var sýnd virðing og hlýhugur,“ segir Valgarður.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅