Vísun í Köngulóarmanninn vekur furðu
Helgi Fannar og Hörður Snævar gerðu upp helstu fréttir og leiki í Íþróttavikunni á DV/433.
Manchester United vann fótboltaleik í vikunni gegn Roma, sem eru stórtíðindi miðað við gengið undanfarið.
Helgi furðaði sig þó á færslum félagsins á samfélagsmiðlum eftir leik. Til að mynda var Matheus Cunha líkt við Köngulóarmanninum, Spider-Man, í frægu atriði.
„Leyfðu okkur nú að gleðjast í þau örfáu skipti sem það er hægt,“ sagði Hörður við þessari gagnrýni.
„Þetta var aðeins meiri hetjudáð í myndinni. En ég ætla ekki að banna mönnum að fagna svosem,“ sagði Helgi léttur.
Þátturinn er í spilaranum.
Atriðið sem félagið vísaði í:
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗