Mátti ekki klæðast grænu í aðgerðinni

Birgir Tjörvi Pétursson höfundur skáldsögunnar Skuggar af Kili.

Þegar Árni Pétur Birgisson var nýfæddur þurfti hann að gangast undir aðgerð á spítala og faðir hans, Birgir Tjörvi Pétursson, viðurkennir að skurðlæknirinn og teymi hans hafi rekið upp stór augu þegar eiginkona hans, Erla Kristín Árnadóttir, spurði í hverju snáðinn yrði meðan á aðgerðinni stæði.

– Enda er það mjög einkennileg spurning!

„Mjög einkennileg,“ viðurkennir Birgir Tjörvi hlæjandi. „En við urðum að spyrja til að tryggja að hann yrði ekki færður í grænt, sem við vissum að væri ráðandi litur á skurðstofunni.“

Skýringin er sú að Erla Kristín heyrir til Reynistaðarættinni og samkvæmt gamalli hjátrú mega karlar ekki heita Bjarni, ekki klæðast grænu og ekki sitja bleikan hest. Allt má þetta rekja til þess atburðar að bræðurnir Bjarni og Einar Halldórssynir frá Reynistað í Skagafirði urðu úti á Kili í vetrarbyrjun 1780.

„Þau skildu þetta mjög vel þegar við vorum búin að útskýra þetta með hjátrúna og sögðu ekkert að óttast,“ heldur Birgir Tjörvi áfram. „Á þessu augnabliki fann ég að þessi gamla hjátrú var búin að grípa mig. Að ég vildi ekki storka örlögunum. Það er tæplega langur vegur milli trúar og hjátrúar, en fólk sem er jafnvel fullt efasemda um hvort tveggja hikar við að taka sénsinn, þegar á hólminn er komið, sérstaklega þegar börnin eiga í hlut.“

– Hvað gerist ef örlögum er storkað?

„Ég hef heyrt sögur af því og dæmi um harmleiki sem hafa vakið upp hjátrúna, ef svo má segja. Flestir sjá bara tilviljanir en slíkar sögur hafa samt snert marga sem er málið skylt, alveg inn að beini. Enda virðir fjöldi manns hjátrúna, alls konar fólk. Það gerðu til dæmis ekki minni menn en Einar Benediktsson þjóðskáld og Indriði Einarsson, embættismaður og leikritaskáld, sem voru af Reynistaðarættinni. Indriði gerir henni nokkur skil í endurminningum sínum og brúar þar að mörgu leyti bil margra kynslóða, en amma hans var systir Reynistaðarbræðra. Við vorum ekkert að hrópa þetta á torgum en pössuðum vel að strákurinn klæddist ekki grænu.“

Með sína fyrstu skáldsögu

Birgir Tjörvi, sem er lögmaður, sendi frá sér sína fyrstu skáldsögu í vikunni, Skuggar af Kili, og þar er þessi hjátrú í brennidepli. Aðalsöguhetjan er af Reynistaðarættinni og fer að kynna sér þessa hjátrú eða bölvun betur er hann greinist með banvænan sjúkdóm. 

Með Skuggum af Kili kveðst Birgir Tjörvi vera að slá tvær flugur í einu höggi; annars vegar sé hann að koma úr leyni með sína skáldadrauma og hins vegar að bera merkið um hjátrú Reynistaðarættarinnar áfram og taka þannig við af mönnum eins og tengdaföður sínum, Árna heitnum Indriðasyni. „Ég hvet fólk eindregið til að segja sína sögu í sambandi við þessa hjátrú og bíð spenntur eftir að sjá hvort einhverjir stígi fram. Það eru fjölmargir þarna úti.“

Og ekki yrði verra ef bókin gæti af sér gagnlegar umræður um málið. „Þótt ég hafi lesið mér töluvert til er ég, ekkert frekar en Halldór í sögunni, einhver fróðleiksnáma um þessa hluti, en mig langar alveg til að læra meira, heyra í fólki sem getur varpað frekara ljósi á þessa merkilegu hjátrú. Ég er ekkert átoritet í málinu og ætla mér ekki að verða það. Ég hef bara mína persónulegu reynslu og fékk svo þessa sögu lánaða frá þessu fólki, til að skrifa skáldverk. Þessari merkilegu ætt sem kennir sig við Reynistað.“

Nánar er rætt við Birgi Tjörva í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅