Lúðvík hjólar í Ólaf Ragnar – „Gagnrýni á höfundinn er aldrei bara gagnrýni. Hún er móðgun við embættið“

Lúðvík Bergvinsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður Samfylkingar, sparar ekki stóru orðin í nýrri grein um Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta á Vísi. Segir hann Ólafur Ragnar ætti að líta í baksýnisspegilinn áður en hann taki það að sér að leiðbeina þjóðinni.

Í greininni sem titlast „Harmsaga ævi minnar“ eftir þekktri sjálfsævisögu Jóhannesar Birkeland reifar Lúðvík feril Ólafs Ragnars og ummæli hans.

„Ef Ólafur Ragnar Grímsson settist niður og skrifaði ævisögu sína væri titillinn nánast sjálfgefinn. Jóhannes Birkiland notaði hann reyndar fyrstur, en Ólafur Ragnar hefur aldrei látið það stöðva sig að aðrir hafi verið á undan honum,“ segir Lúðvík.

Nefnilega sé ekki auðvelt að vera Ólafur Ragnar Grímsson. Sem prófessor, þingmaður, fjármálaráðherra og forseti Íslands í 20 ár og setið til borðs með valdamestu mönnum heims. Ætti slík ævi að skila öryggi, sátt við sig sjálfan og virðingu.

„En einhvern veginn virðist utanfrá séð innri friðurinn alltaf rétt handan við hornið,“ segir Lúðvík. „Enn þarf hann að verja þjóðina. Enn þarf hann að leiðbeina ráðamönnum og útskýra fyrir almenningi hvernig heimurinn virkar. Og enn þarf hann að svara þeim sem leyfa sér að gagnrýna hann, því gagnrýni á Ólaf Ragnar er sjaldnast bara gagnrýni á manninn. Hún er atlaga að allri þeirri virðingu sem hann telur sig hafa áunnið sér með embættum, reynslu og kynnum af stórmennum heimsins.“

Á móti EFTA, NATO og EES

Nýjasta dæmið um þetta er þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, gagnrýndi málflutning Ólafs Ragnars um Rússland og Úkraínu. „Svarið lét ekki á sér standa og því fylgdi einstaklega óviðeigandi uppnefni,“ segir Lúðvík.

Flettir Lúðvík aftar í hinni ímynduðu ævisögu og lítur yfir ferilinn. Til að mynda að Ólafur Ragnar hafi barist gegn EFTA aðild, var andvígur NATO og greiddi atkvæði gegn EES samningnum. Í öll skiptin hafi hann séð hættur þar sem aðrir hafi séð tækifæri. Þetta hafi síðar sýnt sig að verða mikilvægustu stoðir íslensks efnahagslífs, stjórnmála og varnarmála. Jákvæð áhrif á almenning séu ótvíræð.

„Það er ekkert óeðlilegt við að hafa haft rangt fyrir sér. Stjórnmál snúast um ólíkt mat á áhættu og tækifærum. En maður skyldi ætla að sá sem hefur horft upp á allar stóru viðvaranirnar sínar ekki rætast, aftur og aftur, yrði ögn varfærnari næst þegar hann lýsir því yfir að þjóðin standi á barmi glötunar verði hans leið ekki farin,“ segir Lúðvík. „Svo virðist ekki vera. Þegar talið barst að Evrópusambandinu í sumar varð tónninn kunnuglegur. Fullveldið enn á ný í mikilli hættu, afleiðingarnar enn á ný alvarlegar og niðurstaðan lá skýr fyrir áður en nokkur settist að samningaborði. Þetta er EES-ræðan, endurflutt með nýju hættustigi. Nú reyndar í samstarfi við Íhaldið. Það er langur vegur frá draumnum um að verða bjargvættur öreiganna.“

Mörg hlutverk í hruninu

Lúðvík reifar einnig hlutverk Ólafs Ragnars í efnahagshruninu árið 2008. Ólafur Ragnar var þá forseti og hafi kynnt íslenska efnahagsundrið og íslenska athafnamenn fyrir umheiminum. Flugstjórinn í vélinni.

Þegar vélin hafi brotlent hafi hins vegar komið í ljós að hann hafi verið flugfreyja allan tímann. Hann hafi aldrei séð kompásinn heldur aðeins verið að sinna þörfum farþega.

„Þegar rykið settist var hann svo kominn í þriðja búninginn. Nú var hann ræstitæknirinn sem þurfti að ryksuga upp eftir aðra og koma þjóðinni aftur á réttan kjöl. Alltaf með söguskýringuna og hlutverkið á hreinu,“ segir Lúðvík

Stærsta hlutverk hans hafi síðan komiði í Icesave málinu. Þar hafi Ólafur Ragnar leikið hlutverk bjargvætts þjóðarinnar þegar hann synjaði lögum um málið.

Sjá einnig:

Segir Ólaf Ragnar ekkert hafa lært af reynslunni - „Hvað ef hann hefur enn einu sinni rangt fyrir sér?“

„En veruleikinn reyndist flóknari en einfalda hetjusagan. Þrotabú Landsbankans greiddi forgangskröfur innstæðueigenda að fullu og EFTA-dómstóllinn sýknaði íslenska ríkið. Þetta voru mikilvægar niðurstöður. En greiðslurnar komu úr eignum þrotabúsins og sýknan var niðurstaða sjálfstæðs dómsmáls. Hvorugt var persónulegt afrek forsetans,“ segir Lúðvík. „Í ævisögunni er þetta engu að síður kaflinn um manninn sem bjargaði Íslandi. Það er athyglisverð hæfni að geta bæði tekið dramatísku ákvörðunina og fengið heiðurinn af því að allt fór betur en óttast var. Tær snilld.“

Lykilskjal Lavrovs

Kemur þá aftur að átökunum í Úkraínu og Vladímír Pútín, það er í kaflanum sem kallast „Vinir mínir í útlöndum.“ Í þættinum Silfri Egils, mánuði eftir innrásina árið 2022 hafi Ólafur Ragnar sagt Pútín vera hógværan og skynsaman í samskiptum þeirra, hlustað á rök og ekki komið sér fyrir sjónir sem kolruglaður fantur.

„Það má vel vera. En kurteisi í einkasamtali er lélegur mælikvarði á það hvernig menn beita valdi. Pútín hefur leitt Rússland í allsherjarinnrás í Úkraínu og byggt upp kerfi þar sem stjórnarandstaða og sjálfstæðir fjölmiðlar eiga undir högg að sækja. Sá veruleiki hlýtur að vega þyngra en minningar um notaleg samtöl í hlýlegum híbýlum úr opinberum heimsóknum,“ segir Lúðvík.

Að mati Ólafs Ragnars hafi svo framtíð Úkraínu ekki síst ráðist af samtölum Trump og Pútín.

„Það er dálítið sérkennilegt að heyra mann sem hefur í áratugi talað fyrir fullveldi Íslands og rétti smáríkja til að hafa sína eigin rödd leggja svo mikla áherslu á samtal stórveldanna þegar fullveldi Úkraínu er undir. Það er munur á því að hafa hitt valdamenn heimsins og því að hafa rétt fyrir sér um þá,“ segir hann.

Að lokum er vikið að deilingu Ólafs Ragnars á færslu Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sem hann hafi sagt lykilskjal.

„Utanríkisráðherra Íslands gagnrýnir framgönguna og segist hafa þurft að útskýra háttsemi hans fyrir erlendum ráðamönnum. Svar fyrrverandi forsetans er hvorki efnislegt né rökstutt. Hann talar um dylgjur og biturleika, kallar orð ráðherrans „götustelpustíl“ og telur hana ekki hafa jafnað sig á niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Evrópusambandið,“ segir Lúðvík. „Götustelpustíll. Orð sem fáum dytti í hug að nota um karlkyns ráðherra, og síst af öllu þeim sem gerir jafnmiklar kröfur um virðingu sér til handa og höfundur ævisögunnar.“

Móðgun við embættið

Ekkert sé athugavert við að fyrrverand forseti hafi sjálfstæðar skoðanir á alþjóðamálum. En þegar verið sé að nýta stöðu sína og alþjóðlegt tengslanet til að vekja athygli á málflutningi rússneskra stjórnvalda hljóti að mega spyrja gagnrýnna spurninga. Þá þurfi líka að svara með rökum en ekki uppnefnum.

„En hvers vegna þarf gagnrýnin að vera sprottin af biturleika? Gæti hún ekki einfaldlega verið pólitísk gagnrýni á málflutning fyrrverandi forseta? Í ævisögunni er svarið alltaf það sama: gagnrýni á höfundinn er aldrei bara gagnrýni. Hún er móðgun við embættið,“ segir Lúðvík. „En Ólafur Ragnar er ekki lengur forseti Íslands. Hann er fyrrverandi forseti Íslands, og á þessu tvennu er mikilvægur munur. Titillinn veitir honum rétt til að taka þátt í umræðunni eins og hverjum öðrum. Hann veitir honum ekki friðhelgi gagnvart gagnrýni.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅