„Það var engin önnur niðurstaða í boði“

Guðjón Pétur Lýðsson, til vinstri, ásamt Óskari Erni Haukssyni.

Guðjón Pétur Lýðsson, til vinstri, ásamt Óskari Erni Haukssyni. Ljósmynd/Haukar

Guðjón Pétur Lýðsson þjálfari karlaliðs Hauka í fótbolta tók við liðinu síðasta haust eftir að hafa leikið með því tvö tímabil á undan. Hann segir að mikil vinna hafi verið lögð í að byggja upp nýtt lið og að ákveðin hugarfarsbreyting hafi orðið innan félagsins

Guðjón telur þó að ekki hafi verið um eina stóra breytingu að ræða heldur hafi margir þættir spilað saman.

„Það varð ákveðin hugarfarsbreyting í hópnum og félaginu. Hlutverk mitt og þjálfarateymisins var fyrst og fremst að innræta hópnum trú á verkefnið.

Við ætluðum ekki að sætta okkur við að vera bara með í deildinni heldur lögðum af stað í þá vegferð að komast upp úr henni. Liðið æfði vel og við fengum öflugt fólk inn í starfið.

Þetta var samhent átak þjálfara, leikmanna, stuðningsmanna og bakhjarla félagsins,“ sagði Guðjón og bætti við: „Það var engin önnur niðurstaða í boði en að fara upp úr þessari deild og vinna hana,“ sagði hann í samtali við mbl.is. 

Mikil vinna að baki

Guðjón Pétur er með gríðarlega reynslu sem leikmaður og hefur komið víða við. Hann er uppalinn hjá Haukum en hefur auk þess leikið með Breiðabliki, Stjörnunni, ÍBV, Grindavík og Val, auk stuttra stoppa hjá Álftanesi og KA. Hann varð Íslandsmeistari 2017 og 2018 og bikarmeistari árið 2016 með Val.

Þjálfarateymið sem Guðjón leiddi var feikilega öflugt. Pablo Punyed, sem er margfaldur Íslandsmeistari, var ráðinn sem spilandi aðstoðarþjálfari. Óskar Örn Hauksson, leikjahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi er einnig aðstoðarþjálfari og Daði Lárusson markvarðaþjálfari er einnig margfaldur Íslandsmeistari.

Hvernig var það fyrir þig að fara úr því að vera leikmaður yfir í það að verða aðalþjálfari?

„Þetta voru auðvitað ákveðin viðbrigði. Maður er í alls konar verkefnum og það er búið að vera mikið álag að taka að sér að þjálfa fótboltalið af því að þetta hefur verið kannski aðeins meira en að þjálfa. Ég hef mikinn drifkraft og hef náð að ýta við fólki.

Það er nokkuð sem ég tel mig hafa gert vel án þess að eigna mér of mikinn heiður. Það gerði það að verkum að þetta tókst, með samhentu átaki í öllu félaginu, bæði í baklandinu og með hugarfarsbreytingu innan félagsins, að gera okkur að sigurliði,“ sagði Guðjón Pétur.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅