„Trölli er risastórt barn“

Valur Freyr Einarsson leikstýrir söngleiknum Þegar Trölli stal jólunum.

Valur Freyr Einarsson leikstýrir söngleiknum Þegar Trölli stal jólunum.

„Jólahátíðin er tími samveru, söngs … og prakkaraskapar! Allavega hjá Trölla okkar sem er harðákveðinn í að stela jólunum.“ Þannig er jólasýningu Borgarleikhússins, söngleiknum Þegar Trölli stal jólunum, lýst á vef leikhússins en hann hefur verið sýndur víða um Bandaríkin í árafjöld og verður nú loksins sýndur hér á landi.

Söngleikurinn er byggður á sígildri sögu bandaríska höfundarins Dr. Seuss, How the Grinch Stole Christmas!, sem kom fyrst út á bók árið 1957. Dr. Seuss (sem hét réttu nafni Theodor Seuss Geisel) er höfundur bæði mynda og texta bókarinnar sem fjallar um hinn geðvonda og eiturgræna Trölla sem býr í helli uppi í fjalli nærri þorpinu Hvervík. Trölli einsetur sér að eyðileggja jólin fyrir þorpsbúum og litlu munar að honum takist það ætlunarverk en allt fer auðvitað vel að lokum, enda jólaævintýri með fallegum boðskap.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅