Ræstingarnar þurfa að fylgja breytingunum
Rúnar Ágúst Svavarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Hreint, segir fyrirtækið hafa náð allt að 30% hagræðingu hjá viðskiptavinum með því að endurskoða skipulagið og laga þjónustuna að starfseminni. Ljósmynd/Ernir Eyjólfsson
Fundarherbergi sem er sjaldan notað, færra fólk á skrifstofunni og minni umferð yfir sumarið. Allt getur þetta haft áhrif á þörfina fyrir ræstingar þótt þjónustan haldist stundum óbreytt árum saman. Rúnar Ágúst Svavarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Hreint, segir fyrirtækið hafa náð allt að 30% hagræðingu hjá viðskiptavinum með því að endurskoða skipulagið og laga þjónustuna að starfseminni.
„Við sjáum að fyrirtæki eru með ræstingafyrirkomulag sem var skipulagt fyrir mörgum árum en starfsemin hefur tekið miklum breytingum. Starfsmannafjöldinn er annar, nýting húsnæðisins hefur breyst og þarfirnar eru kannski ekki þær sömu. Þá er ástæða til að kafa ofan í þetta og finna lausnir með viðskiptavininum,“ segir Rúnar.
Hann segir aukna áherslu á hagræðingu bæði sprottna úr samtölum við viðskiptavini og breyttum aðstæðum í rekstri. Fyrirtæki séu að rýna í kostnað og ræstingar séu þar engin undantekning.
Hreint hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA annað árið í röð árið 2026 og hefur verið Svansvottað á sviði reglulegra ræstinga frá árinu 2010. Ljósmynd/Ernir Eyjólfsson
Meiri áhersla þar sem þörfin er mest
Hjá Hreint hefst slík yfirferð á því að skoða hvaða svæði þarf að ræsta, hversu oft og hvaða þjónusta hentar á hverjum stað. Rúnar segir tækifærin gjarnan felast í breyttri forgangsröðun og vinnubrögðum.
„Við teljum að tækifærið felist fyrst og fremst í því að endurskoða hvernig hægt er að vinna verkefnin betur eða öðruvísi. Hvaða svæði á að ræsta, með hvaða tíðni og hvaða þjónustu þarf á hverjum tíma? Þetta hljómar kannski einfalt en það liggja miklar pælingar að baki og þarna eru mikil tækifæri.“
Hann nefnir nýlegt dæmi úr verslunar- og þjónusturekstri þar sem endurskoðun á ræstingunum skilaði 30% hagræðingu. Til þess þurfti hvorki miklar fjárfestingar né flóknar breytingar heldur samtal um það sem skipti fyrirtækið mestu máli.
„Þarna var ákveðið að leggja meiri áherslu á hreinlæti á þeim svæðum sem viðskiptavinir fyrirtækisins heimsóttu. Síðan endurskoðuðum við þjónustuna í starfsmannahlutanum og viðskiptavinurinn fór með okkur í að gera auknar kröfur um góða umgengni. Með þessu tókst að nýta ræstingartímann betur og ná fram 30% hagræðingu.“
Samvinnan skipti sköpum. Við slíkar breytingar þurfi að skýra forgangsröðun fyrirtækisins og hvaða upplifun það vilji veita viðskiptavinum sínum. Góð umgengni starfsfólks geti síðan haft meira að segja en margir geri sér grein fyrir.
„Hversu oft eru fundarherbergin notuð? Hversu hátt hlutfall starfsfólks vinnur heima? Gengur starfsfólk frá kaffibollunum af skrifborðinu sínu og setur þá sjálft í uppþvottavélina? Þetta eru alls konar litlir hlutir sem telja oft mikið.“
Til að ná hagræðingu í ræstingu þarf hvorki miklar fjárfestingar né flóknar breytingar heldur samtal um það sem skipti fyrirtækið mestu máli. Ljósmynd/Ernir Eyjólfsson
Árstíðirnar breyta þörfinni
Upplýsingar sem fyrirtæki safna nú þegar um aðsókn og nýtingu húsnæðis geta nýst við skipulag ræstinga. Þannig geti gögn um umferð í verslun gefið vísbendingar um hvenær mest sé að gera og hvar megi breyta þjónustunni.
„Við höfum sérstaklega verið að skoða að aðlaga tíðnina eftir árstíðum. Það þarf ekki sömu ræstingu á sumrin og veturna eða haustin og vorin. Fyrirtæki safna alls konar tölfræðiupplýsingum og vita til dæmis hvernig umferðin er í verslanir. Við getum nýtt þau gögn til að skipuleggja ræstingarnar með markvissari hætti.“
Í einu verkefni hafi yfirferð á umferð yfir sumar og vetur til dæmis sýnt að hægt væri að draga verulega úr þjónustunni yfir sumartímann. Ræstingafyrirkomulagið þurfi þannig að fylgja raunverulegu álagi og breytingum í starfseminni.
Hreint vinnur jafnframt að þróun stafrænna lausna sem eiga að auðvelda skráningu verkefna, samskipti og eftirfylgni. Þar er meðal annars horft til NFC-tækni og einfaldra leiða fyrir starfsfólk til að skrá framkvæmd ræstinga. Markmiðið er að stjórnendur fái betri yfirsýn, auðveldara verði að bregðast við frávikum og upplýsingarnar nýtist til að bæta þjónustuna.
Hjá Hreint eru nokkrir ræstiþjarkar í notkun en meta þarf aðstæður á hverjum stað áður en ákveðið sé hvaða tæki eigi að nota. Tæknin þarf að styðja við starfsfólkið. Ljósmynd/Rúnar Hroði Geirmundsson
Þjarkarnir þurfa rétt verkefni
Ræstiþjarkar vekja líka áhuga en Rúnar segir að meta þurfi aðstæður á hverjum stað áður en ákveðið sé hvaða tæki eigi að nota. Hjá Hreint séu nokkrir þjarkar í notkun og ýmis verkefni í prófun.
„Ræstiróbótar geta verið frábær lausn á stórum og opnum gólfflötum en á sumum stöðum er hefðbundin gólfþvottavél eða önnur aðferð mun skynsamlegri. Við leggjum alltaf áherslu á að velja lausnina sem hentar verkefninu best. Lykilatriðið er að tæknin styðji við starfsfólkið.“
Þjarkarnir sinna gólfþvotti og ryksugun. Að sögn Rúnars þarf að laga þá að hverjum vinnustað og verkefni og yfirleitt þurfi nokkuð stóran gólfflöt til að notkun þeirra skili hagkvæmni.
„Þótt tæknin sé komin til staðar þarf alltaf að aðlaga róbótann að hverjum stað og hverri ræstingu. Það er líka mikilvægt að róbótarnir vinni með starfsfólkinu. Tæknin getur hjálpað því að einbeita sér að öðrum verkefnum þar sem þekking og reynsla skipta mestu máli. Þetta er spurning um að nýta tímann best.“
Hjá Hreint starfa um 200 manns af um 35 þjóðernum. Fjölbreyttur hópurinn setur skemmtilegan svip á mannlífið og andann innan fyrirtækisins. Ljósmynd/Ernir Eyjólfsson
Fólkið skilar þjónustunni
Hjá Hreint starfa um 200 manns af um 35 þjóðernum. Rúnar segir þjálfun og góð samskipti því vega þungt í daglegu starfi. Fjölbreyttur hópurinn setji jafnframt svip á mannlífið og andann innan fyrirtækisins.
„Við getum verið með bestu tækin og fullkomnustu kerfin en þegar öllu er á botninn hvolft er það starfsfólkið sem skilar þjónustunni á hverjum degi. Þetta er mikilvægasti þátturinn í okkar rekstri.“
Sumir starfsmenn hafi verið hjá fyrirtækinu í allt að tuttugu ár. Starfsfólk sem náð hefur fimm ára starfsaldri eða lengri fái starfsaldursviðurkenningar og á síðustu árum hafi þær verið á annað hundrað. Hreint hlaut jafnframt viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA annað árið í röð árið 2026 og hefur verið Svansvottað á sviði reglulegra ræstinga frá árinu 2010.
Uppbygging þjónustunnar heldur einnig áfram á Akureyri þar sem Hreint hefur starfað í tæp 20 ár. Fyrirtækið flutti nýlega í stærra húsnæði að Tryggvabraut 5.
„Við höfum lagt mikla áherslu á að vera nálægt viðskiptavinum okkar og byggja upp öfluga þjónustu á þeim svæðum þar sem við störfum. Nýja húsnæðið á Akureyri er liður í þeirri uppbyggingu.“
Til að auðvelda fyrirtækjum að hefja yfirferð á ræstingunum hefur Hreint sett upp hagræðingarpróf á heimasíðu sinni. Þar er spurt fimm spurninga sem eiga að gefa vísbendingu um hvort ástæða sé til að skoða fyrirkomulagið nánar. Rúnar hvetur stjórnendur til að endurskoða þennan þátt rekstrarins reglulega í samstarfi við þjónustuaðilann.
„Við vildum setja upp einfalt próf. Það þarf ekki umfangsmikla úttekt til að byrja með og sjá hvort tilefni sé til að skoða hlutina betur. Fyrirtæki eru að rýna í reksturinn með tilliti til stærðar, veltu og fjölda starfsfólks og ræstingarnar eiga að fylgja því. Fyrirkomulagið á ekki alltaf að vera eins.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



