„Íslenska stjórnmálamenn skortir kjark“
„Ég held að þau séu að reyna sitt besta til þess að láta þetta ganga upp,“ sagði Hannes Sigurbjörn Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ, í Dagmálum.
Hannes, sem er 51 árs gamall, var ráðinn framkvæmdastjóri KKÍ árið 2023 eftir að hafa verið formaður sambandsins frá árinu 2006.
Erfitt að taka þátt í leikritinu
Íþróttahreyfingin hefur lengi verið fjársvelt en stjórnmálamenn eru engu að síður duglegir að baða sig í sviðsljósinu þegar íslenskt afreksíþróttafólk skarar fram úr.
„Íslenska stjórnmálamenn skortir kjark til þess að viðurkenna hversu mikilvæg íþróttahreyfingin er,“ sagði Hannes.
„Hver einasti stjórnmálamaður er yfirleitt til í að mæta þegar vel gengur, brosa og taka þátt. Ég ætla að vera alveg heiðarlegur með það að það getur tekið á að taka þátt í því leikriti. Við í íþróttahreyfingunni höfum ekki verið nægilega góð í okkar hagsmunagæslu einfaldlega vegna þess að það er svo mikið að gera hjá okkur.
Á Íslandi eigum við að eiga okkar íþróttamálaráðherra. Við erum með barna- og menntamálaráðherra sem er líka ráðherra íþróttamála. Ég vil sjá þetta verða barna-, mennta- og íþróttamálaráðherra. Þannig er það hjá mörgum úti í heimi. Við þurfum að spyrja okkur að því hvort við viljum að íslenskar íþróttir nái árangri, ef svarið er já, þá þurfum við meira fjármagn,“ sagði Hannes meðal annars.
Viðtalið við Hannes í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗