Tóku þrjá menn af lífi vegna mótmæla
Mennirnir voru sakfelldir fyrir að hafa starfað í þágu Ísraels og Bandaríkjanna í mótmælunum gegn stjórnvöldum í landinu í janúar. AFP
Yfirvöld í Íran tóku þrjá menn af lífi í morgun. Mennirnir voru sakfelldir fyrir að hafa starfað í þágu Ísraels og Bandaríkjanna í mótmælunum gegn stjórnvöldum í landinu í janúar.
Mennirnir hétu Hassan Divband, Hamid Kazemi og Reza Zanganeh en samkvæmt fjölmiðlum í Íran voru mennirnir teknir af lífi eftir að hæstiréttur landsins hafði staðfest dauðadómana.
Bensínsprengjur og eggvopn
Í umfjöllun fjölmiðla segir að mennirnir hafi kastað bensínsprengjum og handsprengjum, beitt eggvopnum og skotvopnum og kveikt í opinberum byggingum í borginni Karaj, vestur af Teheran, höfuðborg Írans.
Aðrir sakborningar í málinu hlutu fimm til tíu ára fangelsisdóma.
Mótmælin hófust í desember vegna hækkandi framfærslukostnaðar en breyttust fljótt í víðtæk mótmæli gegn stjórnvöldum. Þau náðu hámarki 8. og 9. janúar. Írönsk yfirvöld segja að yfir 3.000 manns hafi látist og kenna „hryðjuverkum“ á vegum Bandaríkjanna og Ísraels um ofbeldið.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗