Dýrmætt að fylgjast með endurfundunum

Mynd 1 af 5 Íslandsmeistararnir 1961 í KR-heimilinu á dögunum. Frá vinstri: Erna Sigurðardóttir, Þóra R. Ásgeirsdóttir, Margrét Snorradóttir Johnson, Guðrún Svava Svavarsdóttir (fyrir framan), Hrafnhildur Skúladóttir, Málfríður Skúladóttir og Erla Björnsdóttir. Ljósmynd/Antonio Otto Rabasca

Mynd 2 af 5 Íslandsmeistarar KR 1961 í Hálogalandi. Frá vinstri: Helgi Sigurðsson, formaður Kkd. KR, Kolfinna Sigurvinsdóttir (nr.4), Ingveldur Ingólfsdóttir (nr.6), Margrét Georgsdóttir (nr.10), Margrét Snorradóttir (nr.14), Guðrún Svava Svavarsdóttir (nr.11), Gunnhildur Snorradóttir (nr.15), fyrirliði, Hrafnhildur Skúladóttir (nr.16), Erla Björnsdóttir (nr.17), Þóra R Ásgeirsdóttir (nr.18), Erna Sigurðardóttir (nr.19), Halldór Sigurður Hafsteinn Sigurðsson (1942-2026), varaformaður Kkd.KR. Þjálfari var Þórir Arinbjarnarson.

Mynd 3 af 5 Íslandsmeistaralið KR í 2. flokki kvenna 1960. A og B lið saman á myndinni. Aftari röð frá vinstri: Þórir Arinbjarnarson (1935-2015), þjálfari, Friðgerður Benediktsdóttir (1946), Vilborg Bjarnadóttir (1944), Margrét Georgsdóttir (1944), Ingveldur Ingólfsdóttir (1944), Þorbjörg Valdimarsdóttir (1945-2026), Kolfinna „Dísa“ Sigurvinsdóttir (1944), Ingibjörg Kjartansdóttir (1944-2017), Gunnhildur Snorradóttir (1939-2006), varaformaður körfuknattleiksdeildar KR, Helgi Sigurðsson (1937-2022), formaður körfuknattleiksdeildar KR Fremri röð frá vinstri (Íslandsmeistararnir): Málfríður Skúladóttir (1945), Þóra R Ásgeirsdóttir (1944), Margrét Snorradóttir Johnson (1944), Guðrún Svava Svavarsdóttir (1944), Hrafnhildur Skúladóttir (1944), Erla Björnsdóttir (1944), Erna Sigurðardóttir (1944). Ljósmynd/KR

Mynd 4 af 5 KRb Íslandsmeistari í 2.fl. kvenna 1960. Myndin er tekin á Hálogalandi. Aftari röð frá vinstri: Erna Sigurðardóttir 1944 (nr. 19), Þóra R Ásgeirsdóttir 1944 (nr. 18), Erla Björnsdóttir 1944 (nr. 17), Málfríður Skúladóttir 1945 (nr. 21) (systir Hrafnhildar). Fremri röð frá vinstri: Margrét Snorradóttir Johnson 1944 (nr. 14), Guðrún Svava Svavarsdóttir 1944 (nr. 11), Hrafnhildur Skúladóttir 1944 (nr. 16). Ljósmynd/KR

Mynd 5 af 5 Blandaður hópur Íslandsmeistara 2. flokks kvenna 1960 og Íslandsmeistara meistaraflokks kvenna 1961 fyrir leik KR og Ármanns á dögunum. Friðgerður Benediktsdóttir, Erla Björnsdóttir, Erna Sigurðardóttir, Guðrún Svava Svavarsdóttir, Margrét Snorradóttir Johnson, Hrafnhildur Skúladóttir, Málfríður Skúladóttir, Ingveldur Ingólfsdóttir, Margrét Georgsdóttir, Þóra R Ásgeirsdóttir, Kolfinna Sigurvinsdóttir, Vilborg Bjarnadóttir. Ljósmynd/Antonio Otto Rabasca
Færst hefur í vöxt að íþróttafélögin á Íslandi sýni þeim sem á undan hafa gengið tilhlýðilega virðingu, til dæmis með því að bjóða þeim á viðburði eða íþróttakeppnir. Undanfarið hefur verið nokkuð um það að gamlir Íslandsmeistarar komi saman og séu heiðraðir.
Fyrir leik KR og Ármanns í efstu deild kvenna í körfuknattleik í Frostaskjólinu í október voru gamlir Íslandsmeistarar kvenna úr KR kallaðar út á parketið. Þar voru á ferðinni konur sem KR-ingar kalla brautryðjendur í íþróttinni hjá KR. Heiðursgestirnir á leiknum höfðu orðið Íslandsmeistarar í 2. flokki árið 1960 og/eða Íslandsmeistarar í meistaraflokki 1961.
Alls voru 15 konur í þessum tveimur liðum en þrjár eru látnar. Allar 12 þeirra sem eru á lífi gátu mætt, sem verður að teljast afar gott þegar um er að ræða meistaralið fyrir 65 árum. „Þær voru mjög hressar en einhverjar þeirra voru að hittast í fyrsta skipti frá því þær voru liðsfélagar og það var dýrmætt að fylgjast með þessum endurfundum,“ segir Egill Ástráðsson formaður körfuknattleiksdeildarinnar. „Það var virkilega gaman að fá þær og margir afkomendur þeirra eru virkir KR-ingar. Þeir glöddust yfir því að geta séð mæður, ömmur og langömmur heiðraðar.“
70 ára afmæli deildarinnar
Gísli Georgsson, fyrrverandi formaður körfuknattleiksdeildar KR, hélt erindi fyrir leikinn og fór yfir sögu deildarinnar.
„Síðustu misserin höfum við reynt að gera meira af því að minnast á atriði úr sögu KR en félagið á sér auðvitað mikla sögu. Í byrjun október átti körfuknattleiksdeild KR 70 ára afmæli og í tengslum við það fannst okkur vera rétt að heiðra þessar konur sem ruddu brautina í körfunni hjá KR. Um daginn fengum við einnig fyrrverandi formenn körfuknattleiksdeildar til okkar. Þegar við, sem sitjum í núverandi stjórn, tókum við langaði okkur að tengja körfuna í KR enn betur við samfélagið og fólkið í hverfinu. Það má segja að þetta sé hluti af þeirri viðleitni en sumar þessara kvenna hafa til dæmis verið í litlum tengslum við KR í langan tíma,“ segir Egill en gömlu Íslandsmeistararnir horfðu saman á leik KR og Ármanns en það voru einmitt Ármenningar sem KR-ingar unnu árið 1961 í úrslitaleik.
Í liði Íslandsmeistara KR á árunum 1959-1962 voru: Erla Björnsdóttir, Erna Sigurðardóttir, Friðgerður Benediktsdóttir, Guðrún Svava Svavarsdóttir, Gunnhildur Snorradóttir (látin), Hrafnhildur Skúladóttir, Ingibjörg Kjartansdóttir (látin), Ingveldur Ingólfsdóttir, Kolfinna Sigurvinsdóttir, Margrét Georgsdóttir, Margrét Snorradóttir Johnson, Málfríður Skúladóttir, Vilborg Bjarnadóttir, Þorbjörg Valdimarsdóttir (látin) og Þóra Ragnheiður Ásgeirsdóttir. Þjálfari liðsins var Þórir Arinbjarnarson (látinn).
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗