„Fyrir mig var þetta fullkomið augnablik“
Turtildúfurnar eru orðin sjóuð í löngum flugum en í bæði skiptin hafa þau flogið frá Íslandi til Perth í einum rykk. Ljósmynd/Aðsend
Förðunarfræðingurinn og áhrifavaldurinn, Elín Erna Stefánsdóttir, er nýlent á Íslandi eftir draumafrí með maka sínum, Sindra Ingólfssyni. Þau fóru til Vestur-Ástralíu þar sem þau ferðuðust um. Hápunktur ferðarinnar var þegar hann bað hennar í Indónesíu.
Hvers vegna fóruð þið alla leið til Ástralíu í frí?
„Við Sindri höfum smá tengsl við Ástralíu þar sem maður systur minnar, Scott, er Ástrali. Þrátt fyrir að þau hjúin búi hér á Íslandi þá héldu þau brúðkaupið sitt í Perth í Vestur-Ástralíu í fyrra og við fjölskyldan fórum út til að fagna með þeim þar. Fjölskyldan hans Scott hefur síðan verið dugleg að koma í heimsókn hingað til Íslands þannig að við eigum í góðu sambandi við þau.
Við vorum svo hrifin af Ástralíu eftir síðustu ferð að okkur langaði strax aftur út og ákváðum því að skella okkur í aðra mánaðarferð, með smá afslöppun á Balí í lokin,“ segir Elín Erna en brúðkaupið umrædda var í apríl í fyrra.
Hvernig var ferðin ykkar í fyrra?
„Við mættum í brúðkaup aldarinnar í Perth í fyrra og eyddum þá mánuði í Ástralíu. Í það skiptið vorum við að mestu í Perth en tókum svo vikulangt ferðalag suður með fjölskyldunni. Fjölskylda Scotts eyðir reglulega páskunum í Yallingup, þannig að við fórum þangað það árið. Þar rúntuðum við um, skoðuðum vínekrur og nutum okkar á fallegum ströndum.“
Hvernig hefur þér fundist að fljúga frá Íslandi til Ástralíu?
„Mér finnst þetta miklu minna mál en ég hélt að það yrði. Áður en við fórum í fyrra var ég mjög stressuð um að ég myndi alveg missa móðinn á svona löngu ferðalagi en þegar kom að ferðalaginu var ég bara spennt og til í þetta. Mér finnst mikilvægt að vera í góðum þrýstingssokkum, með nokkrar snyrtivörur meðferðis, þ.e. hreinsi, andlitskrem og tannbursta, í handfarangrinum og að vera í kósífötum. Svo bara reyna að njóta þess að horfa, hlusta, lesa og sofa. Góður hálspúði og svefngríma hjálpa líka!“
Elín Erna tengist góðu fólki frá Ástralíu og hefur núna komið þangað tvisvar á tveimur árum. Ljósmynd/Aðsend
Bleika vatnið í uppáhaldi
Hvernig var ferðin í ár?
„Fyrstu tvær vikurnar vorum við í Perth að njóta lífsins með vinum og fjölskyldu en systir mín og Scott voru einmitt úti á svipuðum tíma. Við eyddum dögunum í að skoða okkur um og njóta með vinum og vandamönnum.
Einn daginn tókum við t.d. lestardag en þá byrjuðum við á lestarstoppinu næst heimilinu sem við gistum á og tókum svo stopp á pöbb á hverju stoppi! Þetta var langur en ótrúlega skemmtilegur dagur og í raun góð leið til að sjá aðeins meira af þessari stóru borg. Fremantle stendur samt alltaf upp úr sem minn uppáhaldsstaður í Perth en mér finnst svo gaman að þræða markaðinn þar, kaffihúsin og vintage-búðirnar þar.
Eftir tvær vikur í Perth tókum við svo bílaleigubíl og héldum í „roadtrip“ norður. Fyrsti dagurinn einkenndist af miklum akstri en við keyrðum þá til Kalbarri og eyddum þremur dögum þar. Við byrjuðum morgnana á að gefa pelikönum að borða, slökuðum á á ströndinni og á kvöldin voru kengúrur alls staðar á stjá.
Við skoðuðum Kalbarri-National Park; Kalbarri Skywalk, Nature’s Window og Z-Bend og horfðum á sólsetrið við Red Bluff. Pink Lake var samt mitt uppáhald en við vorum mjög heppin að það var mjög bleikt þegar við vorum þar. Það var í raun alveg ótrúlegt, að sjá skærbleika vatnið njóta sín við bláa himininn, geggjað.“
Elín og Sindri skoðuðu marga staði í Vestur-Ástralíu og meðal annars Kalbarri-þjóðgarðinn. Ljósmynd/Aðsend
„Við héldum svo ferðinni áfram og keyrðum í Shark Bay þar sem við gistum tvær nætur í Monkey Mia. Á leiðinni þangað fórum við að Shell Beach sem er ótrúlega falleg strönd þar sem það var ekki sandur heldur bara heilar skeljar, það var eins og í einhverri bíómynd,“ segir hún en Monkey Mia er strandarbær sem er þekktur fyrir dýralífið sitt.
„Monkey Mia var síðan æðislegur staður til að slaka á og njóta í fallegu umhverfi. Við eyddum miklum tíma á ströndinni og syntum í sjónum og sáum fallegasta sólsetur sem ég hef séð. Þar voru emúfuglar hlaupandi um allt en staðurinn er þó þekktastur fyrir höfrungana sem koma alveg upp að ströndinni á morgnana og fá að borða. Við vorum hins vegar eitthvað ótrúlega óheppin því höfrungarnir ákváðu að halda sig aðeins fjær þessa morgna. Starfsmennirnir sögðu okkur að þetta gerðist bara örfáa daga á ári! Það var samt allt í góðu því þeir voru alltaf þarna mjög nálægt og það var ótrúlega fallegt.
Á leiðinni heim stoppuðum við eina nótt í Geraldton. Þar kíktum við aðeins út á lífið, borðuðum góðan mat og fundum sportbar sem sýndi Arsenal-leik þannig að Sindri var mjög sáttur. Síðan var ferðinni bara heitið aftur til Perth þar sem við þurftum að henda í töskur fyrir Balí daginn eftir.“
Er eitthvað sem þú myndir mæla með fyrir þá sem langar að fara í ferð til Ástralíu?
„Ekki láta langa ferðalagið hræða ykkur! Ástralía er æðislegt land og alveg þess virði að ferðast í rúman sólarhring. Flestir hugsa um Sydney eða Melbourne þegar kemur að Ástralíu og það er eflaust æðislegt en ég mæli klárlega með Vestur-Ástralíu. Perth er mjög skemmtileg borg, myndi alltaf taka dagsferð til Rottnest Island og ferðast síðan eitthvað í kring. Það er svo ótrúlega margt fallegt að sjá!“
Slökun og trúlofun á Balí
Hvernig var dvölin ykkar á Balí?
„Áður en við fórum heim tókum við viku á Balí í Indónesíu en þar vorum við ákveðin í að slaka bara almennilega á og mæta fersk aftur til Íslands. Þar eyddum við nokkrum dögum í Uluwatu og svo í Nusa Dua. Við fórum í öll nuddin, lágum á sundlaugarbakkanum og höfðum það kósí.“
Eftir mjög rólegan dag á sundlaugarbakkanum kom Sindri Elínu á óvart.
„Sindri poppaði spurningunni eftir mjög kósí dag en við vorum búin að vera sötrandi á sundlaugarbakkanum allan daginn, næstseinasta daginn í Nusa Dua. Við vorum nýkomin inn á herbergi að fara að gera okkur til fyrir kvöldmat og þá kom spurningin. Fyrir mig var þetta fullkomið augnablik, bara við tvö að njóta! Við grenjuðum, knúsuðumst og komum okkur svo í góðan kvöldverð á Nusa áður en við sofnuðum svo snemma yfir The Block, mjög Elínar og Sindra-legt kvöld,“ segir hún.
Er einhver áfangastaður sem ykkur langar að ferðast til á næstu árum?
„Okkur langar í raun bara að ferðast um allan heiminn saman en erum ekki með neinar ákveðnar staðsetningar í huga. Á næsta ári er samt planið að hitta Ástralana okkar einhvers staðar í Evrópu, líklega í Portúgal og svo mögulega eyða jólunum 2027 í Perth. Ég er augljóslega Ástralíusjúk og langar bara að búa þar.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/93/1689368.jpg)




