Múrarinn: Vonbrigði en líka sáttur

Múrarinn úr Miðfirði mætir í fimmta og síðasta uppgjörsþátt Sporðakasta um laxveiðisumarið. Rafn Valur Alfreðsson hefur leigt Miðfjarðará í sautján ár og hann segist sáttur við sumarið. Átti von á meiru en áin gaf tæplega 1.800 laxa sem lætur nærri að vera 1,98 laxar á hverja dagsstöng.

Sala á veiðileyfum fyrir síðasta sumar var erfiðari en oftast áður, segir Rafn. Nú eftir þetta góða laxveiðisumar er annað uppi á teningnum og fyrirspurnum hefur fjölgað mikið.

Miðfjarðaráin skar sig úr í Húnavatnssýslunum í sumar í laxveiðinni. Þegar Rafn Valur er spurður hvort hann hafi einhverjar skýringar á því þá vitnar hann til þess að hann sé múrari en ekki fiskifræðingur. Múrarinn telur þó upp þær ástæður sem hann telur blasa við, sem eru bakkalengd og víðfeðmt vatnasvið. „Það er ekki mikill silungur hjá okkur, hvorki sjóbirtingur eða urriði,“ bætir hann við. Þá telur hann að Miðfjarðaráin verji seiðin sín vel og vissulega geti öll þessi atriði spilað saman.

Vonbrigði með Norðurá

Rafn rekur Norðurá fyrir Veiðifélag Norðurár. Hann viðurkennir að veiðin í Norðurá hafi verið ákveðin vonbrigði. Hann telur ána eiga mikið inni en segir jafnframt að leiðsögumenn við ána hafi talið að minna hafi verið af fiski í henni í sumar, en í fyrra. Veiði á stangardag í Norðurá var 0,88 laxar sem var litlu betra en í fyrra. Í næsta nágrenni er Þverá/Kjarrá sem gaf 2,21 lax á stangardag. Mikil úrkoma hafi gert það að verkum að vatnsstaða í ánni var góð og það hafi hjálpað.

Sótthreinsa alla?

Sú alvarlega staða sem upp er komin í nokkrum af helstu laxveiðiám Noregs er til umræðu. Rafn telur að til lengri tíma sé þetta vont fyrir laxveiði í heildina séð. Hann segir að best væri að laxveiði væri góð sem víðast. Þegar kemur að sóttvörnum af þessu tilefni segir hann að slíkar varnir séu hafðar uppi þegar erlendir veiðimenn koma til veiða í þeim ám sem hann sér um. Nú veltir hann fyrir sér hvort ekki þurfi að ganga lengra. Jafnvel að sótthreinsa búnað hjá öllum veiðimönnum sem koma til veiða, hvort sem þeir séu íslenskir eða útlendingar. Þar er hann fyrst og fremst að horfa á vöðlur og vöðluskó.

Sex þúsund laxa sumarið

Við rifjum upp stóra sumarið 2015 í Miðfjarðará þegar veiddust 6.028 laxar um sumarið. Það jafngildir um sjö löxum á hvern stangardag allt tímabilið. „Ég held að þetta sumar hafi ekki gert neinum gott,“ brosir hann. Hann nefnir sem dæmi að hann var með í leiðsögn 75 ára gamlan útlending í tólf daga. Sá veiðimaður landaði yfir 120 löxum.

Að lokum spáir Rafn í framhaldið, næstu sumur og þar segist hann bjartsýnn miðað við hvað hann hefur heyrt um seiðamagn og aðstæður í hafi. En hann minnir á að ótrúlega margt þurfi að ganga upp í langan tíma til að fá gott laxveiðisumar. 

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
108 cm Stóra Laxá Jón Kristinsson 27. september 27.9.
100 cm Laxá í Dölum Reynir Sigmundsson 26. september 26.9.
102 cm Fossá Theodór Ingibergsson 18. september 18.9.
102 cm Selá í Vopnafirði Huginn Freyr Þorsteinsson 4. september 4.9.
103 cm Laxá í Aðaldal Auðunn Sigurðsson 3. september 3.9.
107 cm Laxá í Aðaldal Nils Folmer Jorgensen 29. ágúst 29.8.
102 cm Hofsá Bergþór Jónsson 25. ágúst 25.8.

Skoða meira

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅