Pólitíkus segir að þetta geti verið endalok evrunnar
Frakkland brennur, bæði á götum úti og efnahagslega séð. Reiknað er með að skuldir franska ríkisins verði meira en 120% af landsframleiðslunni á næsta ári. Reiknað er með að atvinnuleysið fari upp í 8,7% og að hallarekstur ríkissjóðs verði 5,7%.
Ofan á þetta bætast mikil mótmæli vegna hækkandi framfærslukostnaðar en þau hafa leitt til íkveikja, skemmdarverka og átaka mótmælenda og lögreglu.
Finnska dagblaðið Iltalehti segir að Katri Kulmuni, þingmaður finnska Miðflokksins á Evrópuþinginu, telji að þessi miklu vandamál Frakklands geti markað endalok evrunnar.
Hún telur að ekki sé hægt að bjarga Frakklandi á sama hátt og Grikklandi var bjargað eftir fjármálakreppuna.
„Ef franskt efnahagslíf hrynur saman, þá er engin leið til að bjarga því með peningum ESB. Það eru ekki til nægir peningar. Þetta yrði endirinn á evrusamstarfinu,“ sagði hún.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗