Líkin talin vera af foreldrum og systur mannsins

Erlent | mbl | 8.11.2026 | 8:07

Níu eru látnir eftir árásir mannsins.

Níu eru látnir eftir árásir mannsins. AFP

Líkin þrjú sem fundust á heimili árásarmannsins sem skaut sex til bana í Kraká í Póllandi í gær eru að öllum líkindum af foreldrum hans og systur.

Þetta segir Andrzej Fijołek, talsmaður ríkislögreglustjóra í Póllandi, í við pólska fjölmiðla.

Fijołek segir að opinber staðfesting fáist ekki fyrr en viðbragðsaðilar hafi lokið störfum á vettvangi.

Níu látnir

Lík tveggja kvenna og karlmanns fundust í íbúð mannsins í bænum Ostrowiec Świętokrzyski í gær.

Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, greindi frá fundinum í gærkvöldi og sagði þá margt benda til þess að um nánustu fjölskyldu árásarmannsins væri að ræða.

Níu eru því látnir eftir árásir mannsins.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅