Líkin talin vera af foreldrum og systur mannsins
Erlent | mbl | 8.11.2026 | 8:07
Líkin þrjú sem fundust á heimili árásarmannsins sem skaut sex til bana í Kraká í Póllandi í gær eru að öllum líkindum af foreldrum hans og systur.
Þetta segir Andrzej Fijołek, talsmaður ríkislögreglustjóra í Póllandi, í við pólska fjölmiðla.
Fijołek segir að opinber staðfesting fáist ekki fyrr en viðbragðsaðilar hafi lokið störfum á vettvangi.
Níu látnir
Lík tveggja kvenna og karlmanns fundust í íbúð mannsins í bænum Ostrowiec Świętokrzyski í gær.
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, greindi frá fundinum í gærkvöldi og sagði þá margt benda til þess að um nánustu fjölskyldu árásarmannsins væri að ræða.
Níu eru því látnir eftir árásir mannsins.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗