Giftur knattspyrnumaður missteig sig illa í beinni

Taylor Ward og Riyad Mahrez.

Taylor Ward og Riyad Mahrez. Ljósmynd/Instagram/Taylor Ward

Knattspyrnumaðurinn Riyad Mahrez virtist ekki gera sér grein fyrir því að hann væri í beinni útsendingu á Twitch þegar hann lét óvarleg ummæli falla um konur í Dúbaí í símtali við Dele Alli.

„Ég er í Dúbaí, vinur. Það eru helvíti flottar gellur hérna, vinur, í alvöru,“ sagði Mahrez en hann notaði orðalagið „fucking birds“ þegar hann ræddi um konurnar.

Það gerði hann þrátt fyrir að Alli hefði varað hann við því að áhorfendur gætu heyrt í honum.

Alli ýtti stólnum sínum samstundis frá hljóðnemanum og hvarf stuttlega úr mynd, og virtist vandræðalegur þegar hann sneri aftur.

Mahrez, sem er 35 ára, er kvæntur fyrirsætunni Taylor Ward og eiga þau tvö börn saman. Hjónin búa í Sádi-Arabíu, þar sem hann leikur með Al-Ahli.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅