Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Raunir harða hægrisins
Pistlahöfundur skannar reglulega netmiðla landsins og kannar hvað sé að frétta. Fyrir valinu verða ekki einungis mest lesnu miðlarnir heldur einnig þeir minni, sem eru oft með annars konar áherslur en þeir stærstu og oft mjög pólitískar. Netmiðillinn frettir.is er þarna á meðal. Þar skrifa hörðustu hægri menn sem finna má hér á landi. Þeir eru venjulega mjög vígreifir enda sannfærðir um að málstaður þeirra sé sá rétti. Þeim finnst Donald Trump vera töffari og eru eflaust nokkuð svekktir eftir stórsigur Demókrata í bandarísku þingkosningunum. Þeir eru samt ekki líklegir til að bera harm sinn á torg með því að rífa hár sitt og klæði. Það er ekki þeirra stíll.
Þetta eru einstaklingar sem gefa ekkert eftir og láta engan láta eiga neitt inni hjá sér. Það má alveg bera virðingu fyrir því. Það er nóg af leiðinda væluskjóðum alls staðar. Svo má heldur ekki láta það fara of mikið í taugarnar á sér að einhverjir séu ósammála manni. Þeir sem tala afar fjálglega um að fagna beri fjölbreytileikanum mega vel muna það. Í hinum margumtalaða fjölbreytileika hlýtur að finnast pláss fyrir harða hægri menn. Varla á að taka af þeim tilveruréttinn. Þeir eiga rétt á málfrelsi og það er óþarfi að hóta þeim málsókn í nánast hvert sinn sem þeir opna munninn. Best er að nota góð og skynsamleg rök í deilum við þá, en svo er líka allt í lagi að gera létt grín að þeim. Brynjar Níelsson tíðkar slíkt í baráttu sinni við vinstri menn og tekst yfirleitt vel upp. Vinstri menn vilja sennilega sem minnst af Brynjari læra, en þeir mættu samt íhuga að nota húmor í pólitískum slag. Varla eru þeir allir húmorslausir.
Aftur skal vikið að netmiðlinum frettir.is. Með reglulegu millibili birtast þar pistlar sem lykta af stækri andúð á Viðreisn og alveg sérstaklega formanninum Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst birtust daglega froðufellandi pistlar um það hversu hræðilegur stjórnmálamaður hún væri. Eitthvað dró úr þessum skrifum eftir kosningarnar en pistlarnir rata þó enn á sinn stað. Af þeim er ljóst að sú staðreynd að Þorgerður Katrín gegnir starfi utanríkisráðherra leggst svo þungt á pistlahöfunda að þeir hafa varla haft rænu á að fagna sigri nei-sinna í kosningunum 29. ágúst. Í nýlegum pistlum er ekki einungis spáð falli Þorgerðar úr formannssæti Viðreisnar heldur einnig því að ríkisstjórnin muni liðast í sundur.
Ekki sér maður innistæðuna fyrir þessum spádómum. Ríkisstjórnin er tiltölulega spræk og í samanburði við hina lánlausu ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er hún sprellandi fjörug og verulega kát.
Stjórnarandstaðan þráir völd og breiðir út faðminn í von um að þjóðin þjóti þangað. Þjóðin virðist ekki hafa áhuga, enda hefur stjórnarandstaðan ekki upp á neitt að bjóða. Hún er yfirleitt geðvond, pirruð og nöldrandi. Það er ekkert heillandi við slíkt sálarástand.
Niðurstöður nýlegrar Gallup könnunar urðu til þess að á netmiðlum mátti lesa fyrirsögnina: Miðflokkurinn í sókn – en flokkurinn hafði bætt við sig rúmlega tveimur prósentum frá fyrri könnun.
Spyrja má: Hverjum gagnast sú sókn? Miðflokkurinn virðist dæmdur til að húka í stjórnarandstöðu. Hann mænir vonaraugum til Sjálfstæðisflokksins sem gat ekki einu sinni hugsað sér að mynda meirihluta með honum í borginni. Sjálfstæðisflokkurinn klappaði þó Miðflokknum á bakið með því að gera oddvita flokksins Ara Edwald að stjórnarformanni í Orkuveitu Reykjavíkur. Síðan þá hefur Miðflokkurinn gegnt hlutverki varadekks hjá meirihluta borgarstjórnar, en vonast líklega til að fá að gegna flottara hlutverki seinna meir.
Harða hægrið mun varla sjá þann draum sinn rætast að ríkisstjórnin liðist í sundur. Gæfa Samfylkingarinnar er að eiga formann sem nýtur trausts meðal þjóðarinnar. Engan bilbug er að finna á formanni Viðreisnar sem er ekki líkleg til að láta pólitíska andstæðinga taka sig á taugum. Enginn skyldi síðan slá Ingu Sæland út af borðinu, enda er hún engin hornkerling.
Í valdaleysi sínu munu hægri mennirnir í örvæntingu halda áfram að ólmast. Leyfum þeim það. Þeir gera þá ekkert verra af sér á meðan.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗