Ók upp á hringtorg og á ljósastaur
Ökumaður var handtekinn í nótt eftir að hafa ekið upp á hringtorg og síðan á ljósastaur. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem nær yfir tímabilið frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.
Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar 4, sem nær yfir Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ.
Sex stöðvaðir
Sex aðrir ökumenn voru stöðvaðir víðs vegar um höfuðborgarsvæðið, grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða vímuefna.
Í umdæmi lögreglustöðvar 2, sem nær yfir Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes, var lögregla kölluð til vegna ungmenna sem sögð voru til vandræða í hverfinu.
Málið reyndist minniháttar og ekki þótti þörf á inngripi lögreglu.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗