Nýi skálinn strax hluti af umhverfi

Nýr Skagfjörðsskáli er í sama stíl og fyrri bygging þarna, sem var reist 1954 en rifin í september sl. mbl.is/Sigurður Bogi

„Nýi skálinn fellur vel að umhverfi og landslagi. Í raun er þetta líkast því að hann hafi alltaf staðið hér,“ segir Sigurður R. Ragnarsson, fulltrúi í stjórn Ferðafélags Íslands (FÍ) og formaður byggingarnefndar þess.

Hann hefur verið í aðalhlutverki við undirbúning að byggingu nýs sæluhúss félagsins í Langadal í Þórsmörk. Það er reist á sama stað og fyrri skáli sem að stofni til var frá árinu 1954. Nýbyggingin er í flestu mjög lík gamla skálanum; arkitektúr og svipur er hinn sami og var eins og alltaf stóð til. Skálinn í Þórsmörk er líka um margt táknmynd FÍ og stemningin þar hefur átt þátt í því að mynda andann í starfi FÍ.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅