Sendur heim en sneri aftur í miðbæinn
Maður sem lögregla hafði sent heim úr miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi með skýrum fyrirmælum um að snúa ekki aftur var handtekinn þar á ný skömmu síðar. Hann gisti fangageymslu lögreglu í nótt.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem nær yfir tímabilið frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.
Maðurinn var fyrst handtekinn eftir að hafa lent í útistöðum við dyraverði í miðbænum. Hann var fluttur á lögreglustöð en þar sem málið var talið minniháttar var honum sleppt að loknum viðræðum og gefið færi á að fara heim til sín.
Honum var jafnframt gert ljóst að hann ætti ekki að snúa aftur í miðbæinn það kvöldið.
Þau skilaboð virðast ekki hafa skilað sér því skömmu síðar var maðurinn aftur handtekinn í miðbænum. Í það skiptið var hann vistaður í fangaklefa vegna ástands.
Tveir handteknir vegna líkamsárásar
Tveir voru handteknir vegna líkamsárásar í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Þolandinn rotaðist og var fluttur á slysadeild.
Meintir gerendur voru færðir á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Annar þeirra var vistaður í fangageymslu en hinum var sleppt að lokinni vettvangsskýrslu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/35/25/1352557.jpg)