Ók upp á hringtorg og á ljósastaur

Sex aðrir ökumenn voru stöðvaðir víðs vegar um höfuðborgarsvæðið.

Sex aðrir ökumenn voru stöðvaðir víðs vegar um höfuðborgarsvæðið. mbl.is/Ólafur Árdal

Ökumaður var handtekinn í nótt eftir að hafa ekið upp á hringtorg og síðan á ljósastaur. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem nær yfir tímabilið frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.

Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar 4, sem nær yfir Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ.

Sex stöðvaðir

Sex aðrir ökumenn voru stöðvaðir víðs vegar um höfuðborgarsvæðið, grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða vímuefna.

Í umdæmi lögreglustöðvar 2, sem nær yfir Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes, var lögregla kölluð til vegna ungmenna sem sögð voru til vandræða í hverfinu.

Málið reyndist minniháttar og ekki þótti þörf á inngripi lögreglu.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅