Dregur úr vindi með morgninum
Hvassviðri gekk yfir landið í nótt og rigndi víða en draga á úr vindi með morgninum, fyrst á norðvestanverðu landinu.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Úrkomusvæðið færist heldur austar í dag og styttir því upp norðvestantil. Í kvöld verður vindur hægur víðast hvar á landinu en víða rigning.
Snjór til fjalla fyrir norðan
Til fjalla á norðanverðu landinu má þó búast við slyddu eða snjókomu og stöku skúrum eða éljum norðvestantil. Hiti verður 3 til 8 stig yfir daginn.
Á morgun er spáð norðlægri átt, 3 til 10 metrum á sekúndu, og verður víða bjart með köflum. Suðaustantil má þó búast við stöku skúrum eða éljum. Þá kólnar heldur í veðri.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗