Fuglaskoðun hefur óvænt áhrif á fólk
Langt og heilbrigt líf snýst ekki bara um að hreyfa sig, heldur einnig um heilbrigt mataræði. Heilinn þarf líka örvun og niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að það að stunda fuglaskoðun geti gert mikinn mun. Eitt það besta við fuglaskoðun er að það þarf ekki að kaupa dýran útbúnað eða greiða fyrir áskrift að líkamsræktarstöð.
BBC segir að niðurstöður margra rannsókna bendi til að fuglaskoðun geti haft jákvæð áhrif á minnið, einbeitinguna og öldrunarferli heilans.
Vísindamenn við Baycrest Academy í Kanada rannsökuðu heila reyndra fuglaskoðara og báru saman við heila fólks sem ekki hefur stundað fuglaskoðun.
Út frá heilamyndum sáu vísindamennirnir mun á þeim svæðum sem stýra meðal annars athyglinni og sjónrænni skynjun.
Hjá reyndu fuglaskoðurunum voru þessi svæði mun betur skipulögð en hjá jafnöldrum sem stunduðu ekki fuglaskoðun. Þetta bendir til að fuglaskoðun geti hjálpað til við að halda ákveðnum þáttum heilastarfseminnar frískum í gegnum allt öldrunarferlið.
Vísindamennirnir benda þó á að niðurstöðurnar sanni ekki beint að fuglaskoðun hægi á öldrun heilans.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗