Jarðskjálfti af stærðinni 5,7 reið yfir Japan
Erlent | mbl | 8.11.2026 | 7:15
Jarðskjálfti af stærðinni 5,7 reið yfir miðhluta Japans í nótt með þeim afleiðingum að tugir slösuðust. Ekkert manntjón varð.
Skjálftinn varð klukkan 1:04 að staðartíma, eða klukkan 16:04 á laugardag að íslenskum tíma.
Skjálftinn átti upptök í Shizuoka-héraði vestur af Tókýó.
Annar skjálfti varð svo í Kumamoto-héraði í nótt og mældist sá 4,3 af stærð.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗