Getið ímyndað ykkur hvað börnin voru hrædd
Jóhann Berg Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu, segir að börnin hans hafi heyrt sprengingar í Abú Dabí á meðan hann var strandaglópur í Manchester vegna átakanna í Mið-Austurlöndum fyrr á þessu ári.
„Þau heyrðu þessar sprengingar og þið getið ímyndað ykkur hvað börnin voru hrædd. Það var virkilega erfitt að vera ekki á staðnum. Það tók mikið á mig,“ sagði hann í hlaðvarpinu Sjöan.
Hann náði að tryggja sér flug til baka með því að framvísa dvalarleyfi sínu, en fjölskyldan fór síðar landleiðina í gegnum Óman og flaug þaðan um Aþenu til Íslands.
„Þetta var streituvaldandi tími fyrir alla. Fólk er ekki vant þessu og vissi ekki hvert þetta stefndi. Það var best að koma sér í burtu.“
Hlaðvarpið má sjá hér fyrir neðan.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/38/60/1386000.jpg)