Saknaði þess að fá þessar upplýsingar úr Laugardalnum - „Því var eiginlega ekki svarað“

433

Sunnudaginn 8. nóvember 2026 07:00

Aron Einar Gunnarsson. Mynd DV/KSJ

Helgi Fannar og Hörður Snævar gerðu upp helstu fréttir og leiki í Íþróttavikunni á DV/433.

Aron Einar Gunnarsson kveður landsliðið eftir komandi leiki í Þjóðadeildinni. Hann spilaði sáralítið í síðasta landsleikjaglugga og getur ekki lengur bætt landsleikjametið. 

Aron getur þó jafnað það ef hann kemur bæði við sögu gegn Búlgaríu og Lúxemborg síðar í mánuðinum.

„Manni finnst skrýtið hvernig þetta hefur þróast, að Aron sé valinn en spili andskotann ekki neitt,“ sagði Hörður í þættinum.

Lokaleikur Arons verður hér heima gegn Lúxemborg og vonast Hörður til að hann verði kvaddur með stæl.

„Ég saknaði þess á fundinum í gær að sjá KSÍ gefa það út að það yrði almennileg kveðjustund á Laugardalsvelli. Því var eiginlega ekki svarað.“

Þátturinn er í spilaranum.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅