Jói Fel: „Ég á mér stóran draum“

Jói Fel deilir með lesendum uppskrift að þakkargjörðarmáltíð þar sem kalkúnn í krydduðum saltpækli og hvítvíns- og aníssósa með sveppum eru í aðalhlutverki. mbl.is/Árni Sæberg

Jóhannes Felixson, betur þekktur sem Jói Fel, á enn mynd af kransakökunni úr fermingarveislunni sinni. Hún heillaði hann svo að hann man eftir henni áratugum síðar. Síðan hefur hann sjálfur bakað ótal kökur, gefið út bækur, kennt landsmönnum í sjónvarpi og rekið eigið bakarí. Einn draumur er þó enn óuppfylltur.

Matargleðin á sér rætur í æskuheimilinu, þar sem heitur matur var bæði í hádeginu og á kvöldin. Maturinn var eldaður frá grunni og fjölskyldan safnaðist saman við eldhúsborðið.

„Ef maður hugsar til baka var eldhúsborðið svo lítið að í dag myndu bara komast tveir fyrir, en samt sátum við þarna sex.“

Faðir hans var að vestan og súrt slátur og kjammar voru meðal þess sem kom á borðið. Ein sterkasta matarminningin er þó lyktin af hangikjöti að sjóða. Enn fær hann hangikjöt úr sveitinni um jólin.

„Ég man alltaf að það var verið að sjóða það og lyktin var svo rosaleg. Þetta er það besta sem ég veit.“

Jói Fel við veisluborðið með kalkúninn. Matargleðin á sér rætur við lítið eldhúsborð æskuheimilisins, þar sem fjölskyldan sat sex saman og naut heimilismatar. mbl.is/Árni Sæberg

Vildi ekki bíða í hálft ár

Um fermingu var Jói farinn að velta fyrir sér hvað ætti að vera á borðum í eigin veislu. Allt var heimagert nema kransakakan sem hann á enn mynd af.

„Ég man hvað þetta heillaði mig mikið. Í grunnskóla, þegar maður var í matreiðslu, fannst mér þetta svo gaman. Ég fékk alltaf tíu í matreiðslu.“

Starfskynning í bakaríi á unglingsárunum styrkti áhugann. Hann hafði þó einnig hug á að læra matreiðslu og tók strætó niður í bæ til að sækjast eftir nemaplássi á Hótel Holti.

Þar fékk hann þau svör að um hálft ár væri þar til næsti nemi yrði tekinn inn. Sú bið hugnaðist honum illa og hann sneri sér aftur að Nýja kökuhúsinu, þar sem hann hafði verið í starfskynningu.

„Þeir sögðu bara: Hvenær geturðu byrjað?“

Baksturinn varð að ævistarfi en matreiðsluáhuginn fylgdi honum áfram.

„Það sem ég ætlaði mér að læra í upphafi fór aldrei. Þannig að ég ákvað bara að vera, innan gæsalappa, sjálfmenntaður kokkur.“

Þakkargjörðardagurinn í Bandaríkjunum er 26. nóvember í ár og því tilvalið að huga að undirbúningnum. Kalkúnn Jóa Fel fær að liggja í krydduðum saltpækli í sólarhring og er borinn fram með hvítvíns- og aníssósu með sveppum. Uppskriftina má finna neðar í greininni. mbl.is/Árni Sæberg

Handskrifaði bókina með blýanti

Jói sótti sér síðar frekari menntun til Danmerkur og kynnti sér sérstaklega súkkulaði- og sykurvinnslu í Zürich. Hann kenndi á námskeiðum og vann að fyrstu Kökubók Hagkaups, sem kom út árið 1996.

„Ég var hátt í þrjú ár að skrifa hana, allt handskrifað með blýanti. Maður átti ekki tölvu.“

Þegar bókin kom út var næsta skref þegar ákveðið. Haustið 1997 opnaði hann eigið bakarí.

Miðlunin hélt líka áfram. Jói var um tíu ára skeið með sjónvarpsþættina Eldsnöggt með Jóa Fel á Stöð 2 og segir þá vinnu hafa verið afar gefandi. Hann hefur jafnframt komið að útgáfu sjö matreiðslubóka og telur birtar uppskriftir sínar vera um 1.500.

Hann segist hafa orðið var við áhrif þáttanna löngu síðar, þegar matreiðslumenn sögðu honum að þeir hefðu horft á hann sem börn og viljað feta sömu braut.

„Ég kom mörgum af stað. Ég er ánægður með það.“

Hvítvíns- og aníssósan með sveppum vakti sérstaka lukku hjá Árna Sæberg ljósmyndara, sem fékk að smakka og sagði hana þá bestu sem hann hefði smakkað. mbl.is/Árni Sæberg

„Það var svolítill tómleiki í manni“

Eftir að hafa byggt upp bakarísreksturinn í aldarfjórðung þurfti Jói að sleppa tökunum. Breytingin var mikil fyrir mann sem hafði varið nánast öllum sínum tíma í vinnuna.

„Maður er búinn að byggja upp rosa fyrirtæki í 25 ár og svo fer það nánast á einni nóttu, eða manni finnst það,“ segir hann.

„Maður stendur svolítið bara einn allt í einu og starir út í loftið. Búinn að vinna alla daga, alla ævi, og svo allt í einu stendurðu og átt ekki neitt og eitthvað áttu að gera. Það var svolítill tómleiki í manni.“

Áhuginn á matnum hvarf þó ekki. Í dag eldar hann, bakar, kennir, heldur úti uppskriftavef og málar myndir.

„Að elda og baka allan daginn er eiginlega það eina sem ég hugsa um og lifi fyrir. Ég segi stundum í gríni að það sé það eina sem ég kann og það eina sem mér finnst skemmtilegt að gera.“

Jói Fel með jólalagkökubombuna sína, prýdda bleiku, ljósu og gulu kremi. Jólakrydd og sítrónubörkur í botnunum gefa tóninn fyrir hátíðirnar. mbl.is/Árni Sæberg

Gefur af sér með kennslu

Í sumar starfaði Jói á Litla-Hrauni, bæði við matseld í mötuneytinu og við að kenna einstaklingum sem þar fullnusta dóma að elda og baka. Hann vann einnig bók með þeim á síðasta ári.

„Mér finnst stundum eins og ég sé svolítið að gefa af mér til baka þegar ég starfa í fangelsinu.“

Hann segir suma þeirra sem hann kenndi hafa haft litla reynslu af því að elda sjálfir. Áhuginn hafi hins vegar verið mikill þegar þeir fengu leiðsögn.

„Þeim fannst svo gaman þegar ég var að kenna þeim að elda og baka. Stundum var ég inni á ganginum hjá þeim í þrjá, fjóra klukkutíma.“

Jói fann að hann náði vel til hópsins. Samhliða því að elda og baka gafst tími til að tala saman.

Kennslan er áfram hluti af starfi hans. Hann segist meðal annars ætla að kenna fólki á Kleppi að elda fyrir jólin. Þá tekur hann að sér minni veislur og heldur námskeið.

„Ég er alltaf eitthvað að elda og baka og kenna og gefa af mér.“

Jói Fel pressar kaffið og býr sig undir að njóta kaffibolla með nýbakaðri kökunni. mbl.is/Árni Sæberg

Fyrir fólk sem vill öðlast öryggi

Á uppskriftavefnum eldabaka.is eru að sögn Jóa komnar um þrjú hundruð uppskriftir. Hverri þeirra fylgir kennslumyndband.

„Þetta er svolítið gert fyrir fólk sem er ekki alveg öruggt í eldhúsinu.“

Hann sér sjálfur um upptökur, hljóð, klippingu og að koma efninu á vefinn. Myndband um kalkúninn sem hann ætlar að gefa okkur uppskriftina að hér neðar í viðtalinu, tók um fjóra til fimm daga í vinnslu. 

„Þetta var um þriggja klukkutíma upptaka og ég endaði í einhverjum átta mínútum. Maður var alveg búinn á því að hlusta á sjálfan sig,“ segir hann og brosir. 

„Áhuginn á uppskriftunum fylgir árstíðunum. Nú er fólk farið að skoða jólakökurnar en þegar nær dregur desember færist athyglin að jólamatnum, steikum og áramótamat.“

Einfaldir réttir geta líka komið á óvart. Parmesankjúklingur með ítalskri tómatsósu hefur til dæmis skotist upp í vinsældum.

„Þetta er einn einfaldasti réttur sem til er. Samt voru allir að horfa á hann. Fólk langar að gera hann en er kannski ekki alveg visst hvernig það á að gera hann frá A til Ö.“

Stökk möndlumylsna með púðursykri og kanil kórónar súkkulaðihjúpinn á kökunni. Jói segir þá sem fengið hafa að smakka gjarnan hafa byrjað á toppnum. mbl.is/Árni Sæberg

Mánuður á frystitogara

Þrátt fyrir fjölbreyttan starfsferil á Jói enn einn draum eftir.

„Ég á mér einn stóran draum: Að fara á sjóinn, á alvöru frystitogara, vera úti í heilan mánuð og elda fyrir mennina þar.“

Honum bauðst slíkt verkefni í fyrra en þá var hann kominn með aðra vinnu. Draumurinn bíður því enn.

Á meðan heldur hann áfram að miðla matargleðinni og deilir hér uppskriftum að kalkúni í saltpækli með hvítvíns- og aníssósu með sveppum og jólalagkökubombu.

Kalkúnninn fær að liggja í krydduðum pækli í sólarhring. Í kökubotnunum eru jólakrydd og sítrónubörkur og ofan á kökuna fer súkkulaðihjúpur og stökk möndlumylsna.

„Þá kemur svona jólaangan þegar þú ert að baka hana.“

Jói Fel á sér eitt lífsmottó sem hann hnikar ekki frá. 

„Ég segi alltaf: Lífið er of stutt fyrir vondan mat.“

Kalkúnn í saltpækli

Kalkúnn í krydduðum saltpækli með meðlæti og hvítvíns- og aníssósu með sveppum. Jói Fel deilir hér uppskriftinni að veislumáltíðinni. mbl.is/Árni Sæberg

Pækill

  • 5 l vatn eða það sem passar yfir kalkúninn
  • 500 g salt
  • 250 g sykur
  • 10 stk. anís
  • 10 stk. negulnaglar
  • 1 msk. fennelfræ
  • 3 stk. kanilstangir
  • 2 stk. heill chili, skorinn
  • Knippi af ferskri salvíu og rósmaríni; salvían má líka vera þurrkuð
  • 15 stk. piparkorn

Aðferð

  1. Setjið um 2 l af vatninu í pott ásamt salti, sykri, kryddi og kryddjurtum. Látið suðuna koma upp.
  2. Hellið blöndunni í rúmgott ílát og bætið afganginum af köldu vatninu saman við. Kælið pækilinn niður í kælihita áður en kalkúnninn er settur út í.
  3. Setjið kalkúninn í pækilinn. Bætið köldu vatni við eftir þörfum svo hann sé allur á kafi.
  4. Hyljið ílátið og látið kalkúninn liggja í pæklinum í um 24 klukkustundir í kæli við 4 °C eða lægra hitastig.
  5. Takið kalkúninn úr pæklinum og þerrið hann vel áður en hann er kryddaður.

Smjörhjúpur

  • 500 g smjör
  • 2 msk. kalkúnakrydd
  • Salt og pipar
  • 1 msk. paprikukrydd
  • 1 msk. púðursykur

Aðferð

  1. Setjið allt saman og penslið yfir kalkúninn á klukkustunda fresti.

Eldun

  1. Eldið kalkúninn í ofni við 140 °C í um 40 mínútur fyrir hvert kíló. Jói er með 5 kg kalkún og eldar hann í um 3½ klukkustund.
  2. Hækkið hitann í 220 °C síðustu 10–15 mínúturnar til að fá hann stökkan.
  3. Látið standa í að lágmarki 20 mínútur áður en kalkúnninn er skorinn.

Hvítvíns- og aníssósa með sveppum

  • Innyflin sem fylgja kalkúninum
  • 2 dl hvítvín
  • 2 dl vatn
  • 1 poki kalkúnakraftur
  • 4–5 stk. anísstjörnur
  • 1 msk. kalkúnakrydd
  • 500 g sveppir
  • ½ l rjómi
  • 1 tsk. dijonsinnep
  • 1 msk. rifsberjasulta
  • Salt og pipar
  • Smjör og olía til að steikja sveppina

Aðferð

  1. Brúnið innyflin vel með salti og pipar.
  2. Setjið vínið saman við og sjóðið niður um helming.
  3. Setjið þá vatn, kraft og krydd saman við. Sjóðið niður og látið standa.
  4. Steikið sveppina á pönnu upp úr smjöri og olíu.
  5. Setjið soðið saman við ásamt rjóma og sinnepi. Kryddið til með salti, pipar og rifsberjasultu.

Jólalagkökubomban

Jólalagkökubomba Jóa Fel með jólakryddi, sítrónuberki og stökkri möndlumylsnu yfir súkkulaðihjúpnum. mbl.is/Árni Sæberg

Botnar

  • 200 g sykur
  • 300 g púðursykur
  • 500 g smjör
  • 400 g egg, 8 stk.
  • 450 g hveiti
  • 5 g lyftiduft
  • 65 g kakó
  • 5 g kanill
  • 2,5 g engifer
  • 2,5 g negull
  • Börkur af einni sítrónu
  • Vanilla

Aðferð

  1. Vinnið sykur og smjör létt og ljóst.
  2. Setjið eggin saman við, eitt í einu, og vinnið vel saman á milli. Munið að skafa niður úr köntunum og botninum.
  3. Setjið krydd og þurrefni saman við og vinnið í gott deig í um 2 mínútur.
  4. Skiptið deiginu í tvennt og smyrjið á bökunarpappír.
  5. Bakið við 220 °C í um 12 mínútur.

Smjörkrem

  • 1 kg mjúkt smjör
  • 1 kg flórsykur
  • 4 stk. egg
  • Vanilludropar og/eða tvær vanillustangir
  • Grænn og rauður matarlitur fyrir grænt og rautt krem, auk hvíts krems

Súkkulaðihjúpur

  • 400 g súkkulaði
  • 40 g ólífuolía

Aðferð

  1. Bræðið rólega í potti og setjið yfir kökuna.

Stökk möndlumylsna

  • 80 g hveiti
  • 80 g smjör
  • 120 g púðursykur
  • Dass af kanil
  • 80 g möndluflögur, 1 poki

Aðferð

  1. Hnoðið allt saman með höndunum.
  2. Dreifið blöndunni vel á bökunarplötu og bakið við 200 °C í um 12 mínútur eða þar til fallegur litur er kominn.
  3. Brjótið eða saxið niður og setjið yfir súkkulaðihjúpinn áður en hann storknar.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅