Vann 30 milljónir og keypti Valentino-skó og restin fór inn í banka

Annie Mist Þórisdóttir er gestur í hlaðvarpinu Marta María býður heim. mbl.is/Marta María

Þegar Annie Mist Þórisdóttir varð heimsmeistari í CrossFit árið 2011 breyttist líf hennar á einni nóttu. Hún fékk um 30 milljónir króna í verðlaunafé en í stað þess að eyða peningunum í lúxuslíf ákvað hún að leggja nánast alla upphæðina fyrir. Hún gerði þó eina undantekningu. Þetta ræðir hún í hlaðvarpinu Marta María býður heim. 

Annie Mist hafði stefnt að því frá átta ára aldri að verða læknir en ákvað að taka sér hlé frá námi til að einbeita sér að CrossFit. Hún hafði ekki mikla peninga á milli handanna og vann meðal annars við þjálfun til að fjármagna æfingar og keppnisferðir. Foreldrar hennar studdu hana jafnframt fjárhagslega fyrstu árin og borguðu meðal annars fyrir hana ferðir erlendis til að keppa.

Fyrsti samningurinn upp á eina milljón

Árið 2010 fékk Annie sinn fyrsta styrktarsamning við Reebok.

„Fyrsti samningurinn var 10 þúsund dollarar. Þannig að það var svona rétt rúm ein milljón fyrir fyrsta samninginn minn,“ segir Annie Mist. 

Samningurinn fólst fyrst og fremst í því að klæðast fatnaði frá fyrirtækinu. Hún fékk jafnframt að taka þátt í vöruþróun og hanna sína eigin skó. Árið eftir vann hún heimsleikana í CrossFit og hlaut verðlaunafé sem Marta María segir hafa numið um 30 milljónum króna.

Leyfði sér eina gjöf

Þegar Marta María spyr hvað hún hafi gert við peningana kemur í ljós að Annie Mist fór afar varlega með þá.

„Heyrðu, ég, verandi týpan sem að ég er, þá keypti ég mér eitt skópar af hérna Valentino skóm og svo fór restin bara inn á læstan bankareikning.“

Annie Mist segir að peningarnir hafi síðar nýst henni við kaup á fyrstu íbúðinni.

Hún hafi ekki viljað eyða þeim í óþarfa enda vissi hún ekki á þessum tíma hversu lengi hún gæti haft atvinnu af CrossFit.

Sigurinn og verðlaunaféð hafi þó breytt miklu fyrir sjálfsmynd hennar.

Hún hafi loksins fundið fyrir því að hún gæti sagt með stolti að hún væri atvinnumaður í CrossFit, þótt hún hefði tekið sér hlé frá háskólanáminu.

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpvef mbl.is og á Spotify og Apple Podcasts. 

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅