„Fyrir svona tækjasjúkan einstakling er bara allt skemmtilegt við þetta“

Vélaáhuginn kviknaði snemma hjá Þórarni sem segir líf sitt í dag snúast að stórum hluta um vélar og tæki. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Það er óhætt að segja að hinn 24 ára gamli Þórarinn Jóhann Theódórsson sé með bíla- og véladellu en hún kom snemma í ljós og hefur aðeins aukist með árunum. Hann er vélvirki að mennt og með réttindi til að stjórna ýmsum vinnuvélum en stefnir á að bæta enn frekar við réttindin. Þórarinn starfar hjá Kraftvélum samhliða því að reka eigið fyrirtæki, Tóta Fljóta.

„Ég er fæddur og uppalinn í Reykjavík, eða að mestu leyti. Ég bjó lengst af á Kjalarnesi og gekk þar bæði í leik- og grunnskóla. Vélaáhuginn kom mjög snemma í ljós. Ég var kannski tveggja eða þriggja ára þegar þetta byrjaði og man varla eftir mér öðruvísi en með einhvers konar leikfangavinnuvél eða bíl í fanginu. Ég var alltaf að skoða vélar og leika mér,“ segir Þórarinn.

Að grunnskóla loknum lá leiðin í Borgarholtsskóla þar sem Þórarinn lærði vélvirkjun og lauk sveinsprófi. Vélar skipa þó ekki aðeins stóran sess í starfi hans því í frítímanum nýtur hann þess meðal annars að gera upp gamla bíla.

„Ég hef líka mikinn áhuga á útivist en bílar eru án efa í mestu uppáhaldi. Ég elska að gera upp gamla bíla. Ég á gamlan BMW sem ég keypti áður en ég fékk bílprófið og hef tekið hann algjörlega í gegn, ryðbætt hann og gert breytingar á vélinni. Hann er eiginlega orðinn eins og nýr,“ segir Þórarinn.

Bíllinn er af árgerð 1995 og átti faðir Þórarins sams konar bíl þegar hann var yngri. „Það var alltaf ákveðinn draumur hjá mér að eignast svona bíl,“ segir Þórarinn, en þetta er fjórði bíllinn sem hann gerir upp.

Vélaæði í fjölskyldunni

Það hljómar eins og bíla- og vélaáhuginn sé í fjölskyldunni?

„Já, þetta kemur svolítið frá pabba mínum og eldri systur. Þau eru bæði mikið bílaáhugafólk, kannski minna fyrir vinnuvélar, en á fullu í bílunum. Áhugi minn byrjaði því í bílum og er þar enn, en ég er sá eini í fjölskyldunni með þennan mikla áhuga á vinnuvélum.“

Faðir Þórarins er orku- og véltæknifræðingur og eldri systir hans bifvélavirki. Það þarf því kannski ekki að koma á óvart að vélarnar hafi heillað hann frá unga aldri.

„Það má segja að það sé ákveðið vélaæði í fjölskyldunni en ég hugsa að ég sé verstur af okkur öllum. Líf mitt snýst um vélar og tæki.“

Þórarinn man vel eftir fyrstu vinnuvélinni sem hann fékk að prófa. Sú upplifun virðist hafa setið í honum, því vélar af sömu tegund eru enn í miklu uppáhaldi hjá honum í dag. Hann er enda kominn með réttindi á slíka vél og á eina sjálfur.

„Ég var bara lítill, kannski sjö eða átta ára. Ég man að það var verið að helluleggja bílaplanið heima á Kjalarnesi og þar fékk ég að setjast upp í bobcat, sem er svona lítil hjólaskófla. Mér fannst þetta svo geggjað,“ segir Þórarinn og bætir við: „Og í dag vinn ég einmitt á svona græju.“

Hvað er það við vinnuvélarnar sem heillar þig svona mikið?

„Ætli það sé ekki bara krafturinn í þeim og hvað maður getur gert ótrúlega mikið með þeim. Svo er þetta ekki bara að setjast upp í vél og keyra af stað, maður þarf að hafa tilfinningu fyrir tækinu og kunna vel á það. Mér finnst líka alltaf gaman að prófa nýjar vélar og læra á eitthvað nýtt. Ég held að ég verði seint leiður á þessu,“ segir Þórarinn.

Dreymdi alltaf um eigin rekstur

Þrátt fyrir ungan aldur er Þórarinn með eigin rekstur, fyrirtækið Tóta Fljóta, sem sér meðal annars um bíla-, báta- og tækjaflutninga. Fyrirtækið stofnaði hann árið 2024 og hefur síðan unnið hörðum höndum að því að byggja reksturinn upp.

Hvað varð til þess að þú ákvaðst að fara út í eigin rekstur svona ungur?

„Það hefur alltaf verið draumur að vinna fyrir sjálfan mig. Þegar sú pæling kom fyrst upp vissi ég samt ekki alveg hvað þetta væri mikil vinna. Þetta er milljón sinnum erfiðara en að vera bara launþegi. Það er erfitt að fá verkefni, maður þarf að auglýsa mikið, gera tilboð, sinna bókhaldi, viðhaldi á tækjum og ýmsu öðru sem ég hugsaði ekkert sérstaklega út í í byrjun,“ segir Þórarinn. „Maður þarf eiginlega að vera smá skrýtinn til að nenna að standa í þessu.“

Þrátt fyrir mikla vinnu í tengslum við fyrirtækið sér Þórarinn ekki eftir ákvörðuninni. „Þetta er mikil vinna. Ég vinn hjá Kraftvélum í hefðbundinni níu-til-fimm-vinnu og allur aukatími, kvöld og helgar, fer í reksturinn. Ég hef lært ótrúlega mikið á þessum tíma og er bara stoltur af því sem ég hef náð að gera.“

Aðspurður hvort ungur aldur hafi einhvern tímann reynst honum hindrun, til dæmis þegar kemur að því að fá verkefni, segist Þórarinn ekki hafa upplifað það. Hann rifjar þó upp skondna sögu. „Ég hef ekki upplifað slíkt en um tíma töldu margir mig vera mun eldri. Ástæðan var sú að ég var með netfang sem endaði á 58 og fólk gerði þá ráð fyrir að það væri fæðingarárið mitt. Þegar það hringdi svo í mig og heyrði röddina mína kom stundum smá hik,“ segir Þórarinn og hlær. „En þetta var bara einhver bulltala, enda netfang sem ég bjó til sem barn. Ég er kominn með annað netfang í dag.“

Hvað er það skemmtilegasta við vinnuna þína?

„Það er bara ótrúlega gaman að fá að vinna við eitt helsta áhugamál sitt. Þetta er mikil og krefjandi vinna en alltaf skemmtileg. Fyrir svona tækjasjúkan einstakling er bara allt skemmtilegt við þetta.“

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅