Skellur fyrir United

Carlos Baleba haltrar af velli.

Carlos Baleba haltrar af velli. AFP/Oli Scarff

Carlos Baleba, miðjumaður Manchester United, verður frá í nokkrar vikur vegna meiðsla aftan í læri sem hann hlaut í 3:2-sigri liðsins á Roma í Meistaradeildinni á þriðjudag.

„Varðandi Carlos vitum við það ekki nákvæmlega, en það verða nokkrar vikur,“ sagði knattspyrnustjórinn Michael Carrick á blaðamannafundi í gær.

„Hann spilar örugglega ekki í þessari viku og ekki heldur í landsleikjahléinu. Þetta verður aðeins lengra en það.“

Kamerúnski landsliðsmaðurinn, sem er 22 ára, hefur aðeins byrjað fimm leiki frá því að hann gekk til liðs við félagið frá Brighton síðasta sumar fyrir 70 milljónir punda, en hann var meiddur á ökkla þegar hann kom.

Patrick Dorgu er byrjaður að æfa að hluta á ný eftir meiðsli sín aftan í læri, en óvíst er hvort hann geti spilað leikinn gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅