Skrýtin lykt í fjölbýlishúsi í Hvassaleiti
Slökkviliðið hefur farið í tvö minniháttar útköll í kvöld.
Dælubíll var kallaður út vegna tilkynningar um skrýtna lykt við fjölbýlishús í Hvassaleiti um níuleytið.
Slökkviliðið var kallað á vettvang og fann þar bensínlykt.
Talið er að um bensínleka hafi verið að ræða að utan en slökkviliðsmenn á vettvangi fundu ekki uppsprettu lyktarinnar.
Þeir töldu ekki ástæðu til að aðhafast vegna hennar. Ekkert hafi verið við henni að gera.
Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir þetta í samtali við mbl.is.
Hitt útkallið var vegna tilkynningu frá brunavarnakerfi að hans sögn. Þar reyndist hins vegar engin hætta á ferðum.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗