Aðferðin ekki til eftirbreytni

Matvælastofnun var með eftirlit í svínabúi Stjörnugríss 15. október síðastliðinn.

Matvælastofnun var með eftirlit í svínabúi Stjörnugríss 15. október síðastliðinn. Samsett mynd

„Við þurfum að rannsaka hvort aðstæður eins og koma fram á myndbandinu séu afleiðing af innbrotinu eða hvort þetta sé eitthvað hjá fyrirtækinu. Það sjáum við náttúrulega ekki á myndbandinu án þess að rannsaka það betur,“ segir Hrönn Ólína Jörundsdóttir spurð út í Stjörnugrísmálið sem vakið hefur mikla athygli.

Matvælastofnun gaf í gær út yfirlýsingu í kjölfar myndskeiða sem Einar Logi Pétursson birti innan úr svínabúum Stjörnugríss á samfélagsmiðlum í gær, en hann hefur játað að hafa brotist inn í bú fyrirtækisins í tvígang.

Þarf að skoða málið í samhengi

Í yfirlýsingu MAST frá því í gær sagði að stofnunin sinnti eftirliti með svínabúum minnst einu sinni á ári, en í yfirlýsingu Stjörnugríss kom fram að MAST hefði seinast heimsótt búin um miðjan október á þessu ári. Hafi það eftirlit verið án alvarlegra athugasemda.

„Þetta þarf náttúrulega að skoða í samhengi og ef við sjáum frávik þegar við komum í eftirlit, ef það eru til dæmis sár á dýrum, þá þarf að skoða hvort viðkomandi eigandi eða fyrirtæki sé meðvitaður og sé að bregðast við og við fylgjum því eftir,“ segir Hrönn við mbl.is.

Aðferðin sem beitt var ekki til eftirbreytni

Hún bætir við að sjái MAST eitthvað sem sé ekki í samræmi við lög og reglur fái fyrirtækið alltaf „frávik“ á það.

„Við tökum auðvitað öllum ábendingum um dýravelferðarmál alvarlega og rannsökum þau, en aðferðin sem beitt var í þessu máli ekki til eftirbreytni að okkar mati.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅