„Dagbjört, þú kemur bara heim“

Dagbjört Barringer Gunnarsdóttir hafði staðið af sér hvert áfallið á fætur öðru þegar eiginmaður hennar, Ben, veiktist skyndilega og var lagður inn á gjörgæslu. Þar, við sjúkrarúm hans, segist hún í fyrsta sinn hafa óttast að bjartsýnin og dugnaðurinn myndu ekki duga til.

Dagbjört segir frá þessu í viðtali í Dagmálum, en hún er nýflutt heim til Íslands ásamt fjölskyldu sinni eftir tólf ára búsetu í Bandaríkjunum.

Hjónin höfðu notið góðra tækifæra þar ytra og komið sér vel fyrir. En á síðustu árum höfðu áföllin rekið hvert annað. Hús þeirra hafði brunnið til grunna, orðið fyrir miklu tjóni í skolpflóði eftir endurbyggingu og Ben hafði slasast alvarlega í bílslysi.

Óttaðist að verða ekkja

Dagbjört lýsir því hvernig hún stóð við sjúkrarúm eiginmannsins, sem lá meðvitundarlaus og tengdur við tæki og slöngur. Með henni var sonur þeirra, Óðinn, sem á erfitt með breytingar á daglegri rútínu.

Þarna áttaði hún sig á hversu berskjölduð fjölskyldan væri án stuðningsnets í kringum sig.

„Ég bara fann það, ég er bara að verða ekkja, þetta er bara búið.“

Hún hringdi hágrátandi heim til Íslands og þegar hún náði tali af föður sínum voru skilaboð hans skýr:

„Dagbjört, þú kemur bara heim.“

Tilbúin fyrir venjulegt fjölskyldulíf

Dagbjört segist í fyrstu hafa hikað við að leggja til að fjölskyldan flytti til Íslands, enda væri Ben Bandaríkjamaður og hefði búið þar alla sína ævi.

Eftir að Ben útskrifaðist af sjúkrahúsi og hóf endurhæfingu var það hann sem lagði áherslu á að fjölskyldan þyrfti að flytja nær stuðningsneti.

Þau hófu því undirbúning að flutningunum og eru nú komin heim til Íslands. Eftir allt sem á undan er gengið segist Dagbjört ekki lengur sækjast eftir því að vera sú duglegasta eða sterkasta.

„Og nú er ég bara tilbúin fyrir miðvikudaga og plokkfisk og svona venjulegt heimilislíf. Ég held að mig langi aldrei að vera duglegust og sterkust með besta drifkraftinn aftur á ævinni.“

Í myndskeiðinu hér að ofan segir Dagbjört frá því þegar hún óttaðist að missa eiginmann sinn og ákvörðuninni sem fjölskyldan tók í kjölfarið.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅