Biðst afsökunar á ummælum um Greenwood

Mason Greenwood spilar í Tyrklandi.

Mason Greenwood spilar í Tyrklandi. AFP/Özan Kose

Clayton Blackmore, fyrrverandi varnarmaður Manchester United, hefur beðist afsökunar á því að hafa hvatt Mason Greenwood til að snúa aftur til félagsins.

„Vel gert, Mason Greenwood, að vinna Liverpool. Komdu heim til okkar, takk,“ skrifaði hann á X eftir að framherjinn skoraði í 3:2-sigri Fenerbahce í Meistaradeildinni á miðvikudag.

Eftir gagnrýni skrifaði Blackmore: „Mér þykir leitt ef ég hef móðgað einhvern, en ég heyrði að hann hefði verið hreinsaður af öllum ásökunum.

Ég bið alla sem ég hef komið í uppnám með ummælum mínum afsökunar.“ Hann ítrekaði að hann hefði talið að Greenwood hefði verið hreinsaður af öllu.

Greenwood var ákærður fyrir tilraun til nauðgunar, stjórnandi og þvingandi hegðun og líkamsárás. Allar ákærur voru felldar niður árið 2023 en það jafngilti ekki sýknu að loknum réttarhöldum.

United ákvað í kjölfarið að hann skyldi halda ferli sínum áfram annars staðar.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅