Á sextugsaldri þegar hann eignaðist sitt fjórða barn
Robert Pires, fyrrum leikmaður Arsenal og franska landsliðsins, er orðinn faðir í fjórða sinn, 53 ára að aldri.
Pires greindi frá gleðitíðindunum á Instagram en hann og nýr maki hans eignuðust dóttur þann 31. október síðastliðinn.
Stúlkan hefur fengið nafnið Olivia og birti Pires fallega svarthvíta mynd þar sem hann heldur í hönd hennar.
„Olivia Pires, 31.10.2026. Velkomin í heiminn, litla stelpan mín,“ skrifaði Frakkinn.
Pires skildi við fyrrverandi eiginkonu sína, Jessicu Lemarie, fyrir tveimur árum en þau höfðu verið saman um árabil.
Elsti sonur hans, Theo, hefur fetað í fótspor föður síns og verið fyrirliði hjá akademíu Arsenal.
Fjölmargar knattspyrnustjörnur óskuðu Pires til hamingju með fjölgunina, þar á meðal Petr Cech, Sol Campbell, Roberto Carlos og Franck Ribery.
Pires er í miklum metum hjá stuðningsmönnum Arsenal eftir farsælan feril hjá félaginu, þar sem hann var meðal annars hluti af hinu ósigrandi liði sem vann ensku úrvalsdeildina árið 2004.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗